Frjáls verslun - 01.10.2013, Page 10
10 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013
TexTi: Hrund HauksdóTTir
Myndir: Geir ólafsson oG úr einkasafni
Gunnar Andri Þórisson komst á metsölulista Amazon á dögunum með bókina
Against the Grain. Gunnar Andri, sem er frumkvöðull; viðskipta- og söluráðgjafi,
var valinn í hóp sérfræðinga sem lögðu til efni í bókina ásamt hinum heims-
þekkta fyrirlesara Brian Tracy sem hefur sérhæft sig í viðskipta þróun og er
margfaldur metsöluhöfundur.
Á mestölulista Amazon
Gunnar Andri Þórisson
komst á metsölulista
Amazon á dögunum
með bókina Against
the Grain.
N
ational Academy
of Best-Selling
Authors™ heiðr-
aði Gunnar Andra
á árlegri verð -
launa hátíð sem fram fór í Holly -
wood í Los Angeles hinn 27. sept -
em ber síðastliðinn.
Bókin Against the Grain fjallar
um hvernig höfundarnir hafa náð
árangri í slæmu efnahagslegu
árferði og var hún gefin út 5. sept -
ember sl. Hún komst á metsölu -
lista í eftirfarandi flokkum:
„Direct Marketing“, „Marketing“,
„Entrepreneurship“, „Marketing
and Sales“ og „Personal Finance“.
Gunnar Andri skrifaði kafla sem
ber nafnið „When the Eruption
Starts, Location is Everything“ en
hann fékk sérstaka viðurkenningu
útgefanda fyrir kaflann (Editor‘s
Choice Award).
Valinn besti kafli bókarinnar
Hvernig kom það til að þú varðst
einn af meðhöfundum í bókinni
Against the Grain?
„Það á sér langa sögu en stutta
útgáfan er sú að ég kynntist Brian
Tracy, við fórum út að borða á
Argentínu steikhúsi og náðum
ein staklega vel saman. Ég sagði
hon um m.a. frá því að ég væri að
skrifa bók sem bæri titilinn Mess -
age From the Middle of Nowhere.
Nokkrum dögum síðar fékk
ég svo tölvupóst frá honum og
hlutirnir gerðust hratt í kjölfarið.