Frjáls verslun - 01.10.2013, Page 16
16 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 í samvinnu við
jólaGjöf fyrir samstarfsfólkið
jólapakki 1
Nautavöðvi
Jólapylsa
pakkarnir eru afGreiddir frá 10. desember.
sjá nánar á haGkaup.is
Hamborgarhryggur
Hangikjöt
Hamlet Trufflur
Carr’s Table Water
Camembert du Bocage
Brie með Chilli og Engifer
HúskarlalaxIberico Paté
Berjasulta
Sultaður Rauðlaukur
17.999
einfalt að panta: Þú sendir tölvupóst á storkaup@storkaup.is eða hringir í Stórkaup í síma 563-5330 alla virka daga á milli 8:00 og 17:00.
Greiddi 3,5 milljarða
Málflutningur í Al Thanimálinu
svonefnda fyrir Héraðsdómi
Rey kjavíkur var áberandi í byrj un
nóvember. Eins og vænti mátti
báru mörg vitni við minnisleysi:
Mig rekur ekki minni til þess. Í
málflutningnum kom fram að
katarski fjárfestirinn og sjeikinn
Al Thani hefði greitt skilanefnd
Kaupþings 3,5 millj arða króna
eftir hrun vegna lánsins til hluta
bréfakaupanna á sínum tíma.
En þau fólu í sér kaup á 5,01%
hlut í bank anum fyrir 200 millj
ónir doll ara, en AlThani lagði
fram sjálfskuldarábyrgð fyrir
um 100 milljónum dollara, eða
helmingi kaupverðsins. Almennt
er það þannig að þegar um
stórlán vegna hlutabréfakaupa er
að ræða tekur bankinn yfirleitt
eingöngu tryggingu í hlutabréf
unum.
Fer völlurinn
eða ekki?
Það er erfitt að átta sig á fram tíð
Reykjavíkurflugvallar í Vatns
mýr inni. Fer hann eða fer hann
ekki? Það er spurningin. Yfir 70
þúsund manns skrifuðu undir
áskorun um að hann yrði áfram
á núverandi stað og í stjórnar
sáttmála ríkisstjórnar innar er
kveðið á um að völlurinn verði
áfram. Þess vegna vakti það
nokkra athygli þegar fulltrúar
rík isins, Reykjavíkurborgar og
Icelandair Group skrifuðu undir
samkomulag um innanlands
flug og að völlurinn verði áfram
til ársins 2022. Þá mun Ragna
Árna dóttir, aðstoðarforstjóri
Lands virkjunar, leiða vinnu við
að „finna varanlegt stæði fyrir
flugvöllinn á höfuðborgar svæð
inu“. Reykavíkurflugvöllur: Að
vera eða vera ekki – eftir 2022.
Svört gisting – en
alls ekkert svarthol
Við erum ekki að tala um svart
hol heldur svarta gistingu. En
nýlega var sagt frá því í fréttum
á mbl.is að svört gisting færðist
í vöxt og að umfang ólöglegrar
hótelgistingar fyrir erlenda
ferða menn hefði aukist þrátt
fyrir átak gegn henni og væru
nú a.m.k. 1.500 slík herbergi til
leigu í Reykjavík og 1.800 um
land allt. Í fréttinni er vitnað til
áætlunar Kristófers Oliversson
ar, framkvæmdastjóra Center
Hotels, og starfsmanna hans
í þessu máli og byggðu þeir
áætlun sína meðal annars á
erlendum vefsíðum sem bjóða
gistingu. Til samanburðar eru
að sögn Kristófers rúmlega
3.000 herbergi í löglegum rekstri
í Reykjavík.
Tap RÚV síð ustu 10
ára rúmir þrír mill-
jarðar
Það hefur mætt mikið á Páli
Magnússyni útvarpsstjóra að
undanförnu en mikið rót komst
á æsta stuðningsmenn RÚV
um þá ákvörðun að fækka
starfs mönnum um 60, eða um
fimmtung allra starfsmanna
hjá fyrirtækinu. Alls 39 hafa
fengið uppsagnarbréf en þar
að auki hættir 21 starfsmaður
fljót lega, þar á meðal fólk með
tíma bundna samninga sem ekki
verða endurnýjaðir og einhverjir
sem fara fyrr á eftirlaun en til
stóð. Páll Magnússon útvarps
stjóri telur að miðað við skerð
dagbókin
Íslenska landsliðið í knattspyrnu var hænufet
frá því að komast á HM í Brasilíu næsta sumar.
Seinni leikurinn við Króata í um spilinu um laust
sæti var þrösk uldurinn. Það breytir engu um að
landsmenn allir gældu við HMdrauminn obbann
af haust inu og hefur sjaldan verið eins mögnuð
stemning í kringum landsliðið í knattspyrnu.
Tólf an er stuðningsmannahópur lands liðsins og
hefur látið mjög að sér kveða.
Draumurinn um að spila á HM í Brasilíu var raunverulegur. Mynd: Páll Stefánsson.
Sjeikinn mætti ekki í Héraðsdóm.
Allir gældu við HM-drauminn