Frjáls verslun - 01.10.2013, Síða 26
26 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013
Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is
Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta
Jó úin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is
Fundir - Móttökur - Veisluþjónusta
Jómfrúin | Lækjargata 4 | 101 Reykjavík | Afgreiðslutími 11-18 | Sími: 55 10 100 | Fax: 55 100 35 | jomfruin@jomfruin.is | www.jomfruin.is
sem dæmi samskiptaforritið
Instagram sem selt hefur verið á
milljarð Bandaríkjadala.
„Við getum talað um menn ingu
ný sköp unar á þessu svæði og hún
er hvergi eins sterk og þarna,“
segir Þorsteinn. „Það þykir til
dæm is ekkert að því að frum
kvöð ull reki sig á vegg og sitji uppi
með mis heppnaða hug mynd.
Hann er þá reynslunni ríkari og
bet ur í stakk búinn til að takast á
við nýja hugmynd.“
misheppnuð tilraun
Þorsteinn nefnir þetta sérstaklega
því það á við um Plain Vanilla
Games. Fyrsta hugmynd fyrir
tæki sins misheppnaðist þótt hún
þætti lofa góðu. Það var tölvu leik
urinn Moogies. Hann var gerð ur
fyrir iPhone og ætlaður börnum.
Þessi leikur var verðlaunaður og
m.a. talinn besti barnaleikurinn á
Norðurlöndum árið 2011. Hann
varð vinsæll í ókeypis útgáfu en
svo þegar átti að fara að selja
að gang hröpuðu vinsældirnar.
Leikurinn hvarf úr röð vinsælustu
leikja í AppStore og þar með var
sagan öll – þrátt fyrir mikið hrós
og fallegt umtal.
„Við lærðum mikið af þessu. Í
viðræðum við bandarísku fjár
fest ana hef ég sagt með stolti
að við bjuggum til góðan leik
en hann misheppnaðist vegna
þess að við komumst aldrei yfir
á það stig að selja leikinn með
við unandi árangri. Þetta telja þeir
kost og ekki löst.“
tekjur verða að koma
Þorsteinn segir jafnframt að „mis
tökin“ við gerð Moogies hafi verið
fyrirtækinu erfið en lær dómsrík.
Reynslan sýnir að það er varasamt
að veðja á einn leik og það er
erfitt að fá fólk til að kaupa net
leiki þegar framboð á ókeypis
leikjum er mikið. Þegar Moogies
kom fram voru snjallsímar tiltölu
lega nýir en smátt og smátt vandist
fólk því að leikirnir væru ókeypis.
Er er þetta þá ekki sama
vandamál með QuizUp? Leik ur
inn er ókeypis. Fjárfestar vænta
þess að reksturinn skili tekjum.
Þeir leggja fé í væntingar og von
ast til að selja sinn hlut að lok um
með hagnaði.
Þorsteinn segir að ýmsir mögu
leikar séu á að afla tekna. Einn
möguleiki er sala auglý singa.
Annar möguleiki er að fyrir tæki
borgi fyrir að fá að setja spurn
ingaleiki inn á „brautar pall inn“.
Spurningarnar væru þá tengdar
framleiðslu eða þjónustu fyrir
tæksins.
Síðan hafa kunnir framleið end
ur netleikja farið þá leið að hafa
takmarkaðan ókeypis að gang fyrst
og taka svo greiðslu fyrir fullan
aðgang. Þannig er hinn vinsæli
leikur Minecraft fjár magn aður.
Enn hefur ekki verið tekin
afstaða til þessara álitamála hjá
Plain Vanilla Games. Næsta verk
efni er að þróa leikinn fyrir fleiri
stýrikerfi og fleiri tæki en bara
iPhone. Síðan þarf að koma með
útgáfur á fleiri tungumálum því
enn sem komið er eru spurn ing
arnar á ensku.
Féð flutt til Íslands
Allt eru þetta atriði sem erlendu
fjárfestarnir þekkja vel. Þorsteinn
segir að starfsmenn bandarísku
fjárfestingasjóðanna búi yfir
mik illi þekkingu á bæði rekstri og
tækni og hafi sambönd við ólíkar
greinar. Þessu er ekki til að dreifa
í litlu tækniumhverfi eins og á
Íslandi.
„Hefðin fyrir að leggja fé í
ný sköpun er sterk og frumkvöðl
arnir fá frelsi til að elta hugmyndir
sínar,“ segir Þorsteinn.
Féð er allt flutt til Íslands í
gegn um dótturfyrirtæki ytra og
vinnan unnin heima. Höfuð
stöðv ar Plain Vanilla Games eru
við Laugaveginn.
„Fyrir fjárfestana er þetta ekki
spurning um að flytja fé innfyrir
gjaldeyrishöft og lokast þar inni.
Fénu er varið til þróunarvinnu á
Íslandi og verður þar eftir óháð
því hvort þessi vinna heppnast
eða ekki,“ segir Þorsteinn.
Hann segist jafnframt fá margar
fyrirspurnir frá innlendum fjár
festum um að kaupa hlut en sem
stendur er ekki verið að leita eftir
meiri framlögum.
„Þetta er verkefni sem er eign
lega bara að byrja núna. Við vit
um ekki hvert vinnan leiðir okkur
en það er mikil vinna eftir,“ segir
Þorsteinn.
samfélag á netinu
Leiknum sjálfum líkir hann við
samfélag þar sem fólk hittist og
keppir. Stundum eru það vinir og
kunningjar sem koma sér saman
um að keppa eða að keppt er við
ókunnugt fólk einhvers staðar í
heiminum.
Fyrstu markaðsrannsóknir hafa
sýnt að meðalþáttakandi ver um
fjörutíu mínútum á dag í leikinn.
Það kom Þorsteini á óvart að fólk
skuli dvelja svo lengi á þessum
„brautarpalli“.
Svo virðist líka sem flestir séu
með í Quizup á kvöldin, jafnvel
þegar komið er að háttatíma.
Fólk tekur nokkrar spurningar
fyrir svefninn.
PLain VaniLLa
Féð er allt flutt til íslands í gegnum dótturfyrirtæki ytra og vinnan
unnin heima. Höfuðstöðvar Plain Vanilla Games eru við Laugaveginn.
Plain Vanilla
Höfuðstöðvar: Reykjavík.
Verðmat: Yfir tveir milljarðar króna.
starfsmenn: 25.
Dótturfyrirtæki: Í Bandaríkjunum.
Bandarískir fjarfestingasjóðir:
Hafa lagt 5,7 milljónir
Bandaríkjadala í fyrirtækið.
Til Íslands: Féð er flutt innfyrir
gjaldeyrishöftin á Íslandi þar sem
þróunarvinnan fer fram.
notendur: Yfir þrjár milljónir
notenda að leiknum QuizUp.
Fjárfestingasjóðurinn:
Sequoia Capital í San Francisco
leggur mest fé fram til að þróa
hugmyndina.
Quizup: Spurningar eru yfir 150
þúsund og forritið gengur út á að
hver og einn getur slegist í hópinn
með sínar eigin spurningar.