Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2013, Síða 32

Frjáls verslun - 01.10.2013, Síða 32
32 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 Ingibjörg Þórðardóttir segir að fasteignamarkaðurinn sé nokkru rólegri nú en verið hefur á liðnum mánuðum. Einungis örfáir dagar séu síðan stjórnvöld kynntu lánaleið ­ réttingar en það sé nokkuð sem fólk hafi beðið eftir og muni vafalaust hafa jákvæð áhrif á fast eignamarkaðinn enda nokkur óvissa ríkt sem hafi leitt til að fólk hafi haldið að sér höndum. „Ég er bjartsýn á það sem er framundan og tel að á nýju ári og jafnvel fyrir áramót muni mark aðurinn taka nokkurn kipp. Það er uppsöfnuð þörf, bæði fyrir þá sem þurfa að minnka við sig og eins ungar fjölskyldur sem eru að koma inn á markaðinn jafnvel í fyrsta skipti.“ Ingibjörg segir að umræðan í haust varðandi húsnæðismálin hafi að miklu leyti snúið að því að fólk eigi að leigja frekar en kaupa, en í þeirri umræðu og framkvæmd sé ósamræmi þar sem þeir sem hyggjast kaupa fasteign þurfi að undirgangast mjög erfitt og strangt greiðslumat í kjölfar hertra reglna neytenda­ laga og reglugerðar á grundvelli þeirra sem tók gildi 1. nóvember sl. Þeir sem á hinn bóginn hyggj­ ast fara inn á leigumarkaðinn geti gert leigu samninga um húsnæði án þess að þurfa að sýna fram á að þeir séu gjald­ færir. Þetta er nokkuð sem þarfn­ ast skoðunar enda sé fólki með þessari skipan beint eða óbeint stýrt inn á leigumarkaðinn. Mikil­ vægt er til framtíðar að ungu fólki og öðrum sem eru undir tekjumörkum sé gefinn kostur á að fá hagkvæmari lán standi vilji til að eignast þak yfir höfuðið þannig að fólk geti átt raunveru­ legt val. Eitthvað sem þarf að skoða inGiBjöRG ÞÓRðARdÓTTiR – formaður félags fasteignasala FASTEIGNA- MARKAÐURINN Við erum yfirleitt mjög fók­useruð á hvað skapi innri styrk góðs stjórnanda en það eru eðlisþættir eins og baráttugleði og seigla. Sjaldnar er minnst á innri styrk með það í huga hvað sterkur stjórnandi forðast að gera. Ófáar eru gryfj­ urnar, sem menn festa sig í, til þess eins að losna við kvíðavekj­ andi aðstæður.“ Högni Óskars­ son segir að fyrsti pytturinn sé gjarnan sá að kenna öðrum um mistök og ófarir; að velta ábyrgð á óyndi sínu yfir á aðra og fyllast sjálfsvorkunn. „Sterkur stjórnandi tekur ábyrgð á sér og verkum sínum og undirmannanna. Hann festir sig ekki í því liðna, heldur ýtir því sem miður fór aftur fyrir sig og ryður leiðina áfram. Mistökin hræða ekki og verða ekki endur­ tekin. Þau virka sem orkugjafi til að gera betur. Það liggur því í hlutarins eðli að stjórnandinn forðast ekki breytingar né yfir­ vegaðar áhættur. Hann fagnar þvert á móti slíkum tækifærum. Meðvirkni einkennir ekki þann sem berst fyrir árangri. Það þýðir ekki að hann sé bara harður nagli. Þvert á móti er sá sem hefur nægan innri styrk jafn óragur við að takast á við erfiða árekstra og að sýna góðmennsku og hrósa. Sömuleiðis gleðst hann yfir velgengni annarra í stað þess að detta niður í öfund og baktal. Hann veit nefnilega að hann einn er ábyrgur fyrir eigin velgengni.“ Högni segir að væntingar um skyndilausnir séu fjarri öflug­ um stjórnanda. „Hann veit að afburðaárangur kemur ekki eins og lottóvinningur; maður leggur sig allan fram og hættir ekki fyrr en sigur er unninn.“ HöGni ÓsKARsson – geðlæknir og stjórnendaþjálfari SKIPULAGIÐ Í VINNUNNI skoðun Nestisbitar inn í árið 2014 inGRid KuHlmAn – framkvæmda stjóri Þekkingarmiðlunar HOLLRÁÐ Í STJÓRNUN Ingrid Kuhlman segir að víða vanti endurgjöf. „Það er lítið rætt við fólk um frammistöðu þess en þetta er ein mikilvæg­ asta aðferð sem stjórnendur hafa til að aðstoða starfsmenn við að bæta frammistöðuna. Hægt er að skipta endurgjöf í tvennt; annars vegar styrkj­ andi endurgjöf eða hrós með það að markmiði að styrkja æskilega hegðun og hins vegar leiðréttandi endurgjöf eða gagn rýni með það að markmiði að fá fram breytingu á óæski­ legri hegðun. Bæði styrkjandi og leiðréttandi endurgjöf er ómiss andi og verðmæt við réttar aðstæður.“ Ingrid segir að þegar stjórn­endur veita endurgjöf skipti nokkur atriði miklu máli. „Í fyrsta lagi er mikilvægt að endur gjöfin sé nákvæm og skýr en ekki almenn eða óljós. Í öðru lagi skiptir máli að einblínt sé á hegðun eða verk efni starfs­ manns en ekki per sónuna. Endur gjöfin verður aðeins sam þykkt þegar hún er ekki ógnun. Í þriðja lagi ber endur­ gjöf mestan árangur þegar hún er veitt strax eftir að tiltekin hegð un er sýnd. Því fyrr sem endur gjöf er veitt, þeim mun betur tengist hún hegðuninni sem á að styrkja eða leiðrétta. Í fjórða lagi skiptir máli að nota ekki orðið „en“, sem dregur úr öllu því sem sagt var á undan. Í fimmta lagi er mikilvægt að stjórnandinn fari ekki út í önnur mál eða gagnrýni strax eftir að hann hefur veitt hrós en það getur eyðilagt jákvæð áhrif hróssins.“ Lítið rætt við fólk um frammistöðu þess Virðing RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Þau fyrirtæki sem þegar hafa öðlast jafnlaunavottun eru: Íslenska gámafélagið, IKEA, ISS, Parlogis, Johan Rönning, Landmælingar Íslands, Deloitte, KPMG, Logos, Ölgerðin, Securitas, Reykjavík Excursions - Kynnisferðir, Hýsing Vöruhótel og Byggðastofnun. Óútskýrður launamunur kynjanna innan VR er nú 9,4%. Með Jafnlaunavottun VR geta framsækin fyrirtæki látið gera faglega úttekt á því hvort innan veggja þeirra séu greidd mishá laun fyrir jafnverðmæt störf. jafnlaunavottun.vr.is Jafnlaunavottun VR er fyrir öll fyrirtæki og opinberar stofnanir. Hún staðfestir að konur og karlar fái sömu laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Leiðréttum launamun kynjanna
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.