Frjáls verslun - 01.10.2013, Page 46
46 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013
Það að fjalla um dauðann í viðskipta tengdri bók kann einhverjum að finnast markaðslegt
glapræði. Svo ég tali nú ekki
um þegar titillinn vísar til þess
að yfirgefa þennan heim „með
tóman tank“ eins og titillinn, Die
Empty, vísar í. Undirtitillinn gefur
þó fyrirheit um ljósið í myrkrinu
og lofar lesandanum ráðum
um hvernig hægt er að losa úr
læðingi bestu mögulegu vinnu á
hverjum degi. Alveg eins og við
vitum ekki hvenær kallið kemur
má segja að fyrirtæki lúti sömu
lögmálum þótt fyrirsjáanleikinn
sé þó lítið eitt meiri. Allt það sem
höfundur setur fram og beinist
að einstaklingum má auðveld
lega yfirfæra á fyrirtæki og
lífsferil þeirra.
Ekkert
sjálfshjálpar kjaftæði
Höfundur hefur leikinn á að skil
greina hvað hann á við og hvað
ekki með því að nota mynd
líkinguna „tóman tank“. Enda
ekki vanþörf á þar sem margir
tengja þetta orðasamband því
að vera úrvinda, aðframkominn
og þurrausinn. Hugmyndir höf
undar snúast hins vegar ekki um
það að gera allt í dag og verða
úrvinda. Þær snúast heldur ekki
um að beina kröftunum ein
göngu að vinnunni og hundsa
öll önnur svið lífsins. Hann er
ekki að tala um að „lifa lífinu eins
og enginn sé morgundagurinn“
né að elta duttlunga sína í einu
eða öllu. Það sem hann á við er
að dagar okkar hér á jörðu eru
taldir, einn daginn munu þeir
klárast. Hvert og eitt okkar hefur
einstakt framlag til heimsins fram
að færa sem enginn annar getur
fært fyrir okkur. Höfundur tekur
sérstaklega fram að þá sé hann
á engan hátt að vísa í sjálfs
hjálparkjaftæði heldur hreinan
sannleik sem auðveldara sé að
snúa baki við en samþykkja.
Óvinur hins
stórfenglega
Höfundur setur fram nokkur
lögmál sem bókin svo geng
ur út á. Lögmálin eru t.d. að
forðast það að hafa það „of
þægilegt“. Of mikil þægindi geti
Dagar okkar hér á jörð eru takmörkuð auðlind. Í bókinni Die Empty – Un-
leash Your Best Work Every Day fjallar höfundurinn, Todd Henry, um það
hvernig við getum nýtt alla okkar möguleika á hverjum degi í störfum
okkar svo við getum á æðsta degi, hvenær sem hann verður nú, sagt að
við séum búin að gera allt sem við gátum til að leggja okkar af mörkum.
TexTi: unnur valborG HilMarsdóTTir
Myndir: Geir ólafsson
Unnur Valborg Hilmarsdóttir
stjórnendaþjálfari hjá vendum
Svo ég tali nú ekki
um þegar titill-
inn vísar til þess
að yfirgefa þennan
heim „með tóman
tank“ eins og titill-
inn, Die Empty,
vísar í.
bækur
Tómur tankur á æðsta degi
Fjallað um dauðann í viðskiptatengdri bók; Die Empty:
sjö dauða-
syndir meðal-
mennsk-
unnar
Í bókinni setur höfundur
fram sjö atriði sem að hans
mati eru mikilvægust til að
við nýtum hæfni okkar og
möguleika til fulls.
STEFNULEYSI: Það er
ómögu legt að hitta í mark með
boga og ör með bundið fyrir
augu. Sama á við um árangur.
Það er ekki hægt að ná
framúrskarandi árangri nema
með því að varða leiðina
þang að skýrum vörðum um
hvað þú vilt standa fyrir í lífinu.
Án skýrrar sýnar á markið
verður árangur tilviljanakennd
ur og ekki eins ánægjulegur.
LEIÐI: Það að leiðast er ekki
endilega slæmt en hvernig við
tökumst á við leiðann ákvarðar
hvort hann ýtir undir fram
leiðni eða stöðnun. Lækningin
við leiðanum er meðvituð
forvitni.
ÞÆGinDi: Ástin á þægindun
um er oft óvinur stórfengleik
ans. Við þurfum stöðugt að
vera að fara út fyrir þæginda
hringinn til að þróa hæfni
okkar enn frekar og komast
upp úr hjólförunum.
SJÁLFSBLEKKING: Til að
leggja það af mörkum sem
þú ert fær um þarftu að vera
meðvitaður um hæfni þína,