Frjáls verslun - 01.10.2013, Qupperneq 47
FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 47
verið hættuleg, hið þægilega
geti verið óvinur þess stórfeng
lega. Lögmálin eru fleiri, t.d.
mikilvægi þess að taka stöðu í
takt við þín persónulegu gildi,
mikilvægi sjálfsþekkingar til að
þekkja styrk leikana og tækifæri
til vaxtar. Einnig leggur höfundur
áherslu á mikilvægi þess að
vera sífellt að sá fræjum til að
uppskeran verði góð.
Tómur tankur
Tómi tankurinn sem höfundur
vísar til er því ekki tómur af
ofálagi heldur er hann þurraus
inn. Sá sem aðhyllist þessa
hugmyndafræði nýtir hana til
að koma meiru í verk í leik og
starfi í daglega lífinu og, það
sem meira er; að koma réttu
hlutunum í verk. Þessi aðili verð
ur því á æðsta degi búinn að
gera allt það sem hann langaði
til að gera og á ekkert eftir
ógert, engin eftirsjá og leggur
þann ig sitt af mörkum til að rýra
verðgildi kirkjugarðanna (sjá
texta í ramma – Hvar er dýrasta
landið).
Fyrir hverja
Alltof sjaldan rekur á fjörurnar
bækur sem fá mann til að hugsa
og hvetja mann til að gera eit t
hvað öðruvísi en maður er van ur.
Þetta er sú bók. Hún er afar
skemmtilega uppsett, einföld
en um leið knýjandi. Hver hluti
endar á krefjandi spurningum
sem lesandinn ætti að spyrja sig
og í kjölfarið fylgja leiðbeiningar
um hvernig lesandinn getur deilt
spekinni með öðrum, því eins og
höfundur segir sjálfur stimplar
fátt nýja þekkingu eins vel inn
og að kenna hana einhverjum
öðrum. Bókin hentar öllum þeim
sem vilja koma meiru í verk í leik
og starfi og eru tilbúnir til að fara
út fyrir þægindarammann til að
svo megi verða, skora á sjálfa(n)
sig og um leið umhverfið.
veikleika og hvað drífur þig
áfram. Ekki nóg með það,
heldur þarftu að stilla athafnir
þínar af í takt við þekkingu
þína. Þannig leggurðu grunn
að árangri.
EGÓIÐ: Það er óhjákvæmilegt
að gera mistök í lífi og starfi.
Sumum finnst þeir brenni
merktir við mistök og gera
hvað sem þeir geta til að af
neita þeim, breiða yfir þau eða
snúa þeim upp í sigur. Það er
sjaldnast markmiðið í sjálfu
sér að gera mistök en við
ætt um að gera þau að reynslu
sem við getum lært af frekar
en reynslu sem við ættum að
skammast okkar fyrir.
Ótti: Óttinn þrífst á hinu
óþekkta. Lamandi áhrif hans
eiga oftar rætur að rekja til
ímyndunaraflsins fremur en
raunveruleikans. Til að sigrast
á óttanum þurfum við að taka
meðvitaða og stefnumiðaða
áhættu í lífi og starfi.
VARNIR: Það ná fæstir
ár angri í tómarúmi. Við náum
árangri í samfélagi við aðra,
hinum ýmsu teymum. Þau
tengsl eru hins vegar oft það
sem látið er sitja á hakanum
þegar mikið er að gera og
hætta á að við lokum okkur
af – setjum upp varnir og
haus inn undir okkur. Lausnin á
því er að koma sér upp stuðn
ingskerfi sem lætur vita þegar
halla er farið á nauðsynleg
samskipti og bæta úr því áður
en skaðinn er skeður.
Bókin er afar
skemmti lega uppsett,
einföld en um leið
knýjandi.
Todd Henry
eR ÁsTRÍðAn ÞAð einA
sem Til ÞARf?
Í mjög mörgum bókum og greinum sem fjalla um árangur í starfi er fjallað um mikilvægi þess að finna það sem þú brennu r fyrir, ástríðuna þína, og árangurinn muni fylgja í kjölfarið. Höfundur DieEmpty skorar á þessa hugsun og segir: „Okkur er sagt hvað
eftir annað að það eina sem þurfi að gera sé að „finna ástríðuna“
og peningarnir fylgi í kjölfarið.“ Hann heldur því fram að það sé í
raun og veru sjálfselsk leið til að finna leiðir til að starfa við það
sem skiptir máli – og að sá sem er drifinn áfram af sjálfselsku geti
ekki náð hámarksárangri. Á endanum dofnar ástríðan sem þannig
er fundin og við förum af stað í leit að nýrri ástríðu. Betri leið er að
spyrja sig „hvar get ég aukið virði?“ í stað þess að spyrja „hvað get
ég fengið?“.
HVAR eR VeRðmæTAsTA
lAndið
Í bókinni segir höfundur frá fundi með vini sínum þar sem sá spurði hóp af fólki: „Hvar er verðmætasta landið?“ Fólk gat upp á stöðum eins og Manhattan, olíulindasvæði í MiðAusturlöndum og svæði gullnáma í SuðurAfríku áður en vinurinn skar úr um
að hópurinn væri á algjörum villigötum. „Verðmætasta landið,“ sagði
hann, „eru kirkjugarðar þessa heims. Í þeim eru grafnar allar óskrif
uðu skáldsögurnar, óstofnuðu fyrirtækin, óbættu samböndin og allt
annað sem fólk taldi sér trú um að það ætlaði að „drífa í á morgun“.
Einn daginn rann hins vegar upp síðasti morgundagurinn.“
Það má segja að þessi hugsun sé kveikjan að bókinni Die Empty
– Unleash Your Best Work Every Day. Höfundur fór að velta fyrir sér
hvað hann þyrfti að gera til að tryggja að þegar hann færi í gröfina
væri hann „þurrausinn“, búinn að hrinda í framkvæmd öllu því sem
hann ætlaði sér. Eða með öðrum orðum; deyja „með tóman tank“.
ÞRjÁR undiRsTöðuR
VelGenGni
Í bókinni setur höfundur fram þrjár meginstoðir velgengni. Þær eru
kortlagning (mapping), aðgerðir (making) og tenging (meshing).
kortlagning: Þetta stig er skipulagsstig, markmiðasetning og
forgangsröðun. Vinnan á undan vinnunni sem tryggir að kastljósinu,
tímanum og orkunni sé beint að réttu hlutunum á réttum tíma.
Aðgerðir: Eins og orðið segir til um þá er það á þessu stigi sem hin
raunverulega vinna fer fram.
tenging: Á þessu stigi verða til tengingar á milli þátta. Þetta er vinn
an á milli vinnunnar sem í raun og veru skilar þér árangri, það að sjá
stóra samhengið og tækifærin sem í því felast.
Til að ná árangri þarf meðvitað að hafa alla þrjá þættina í huga. Höf
undur heldur því fram að það gerist ekki af sjálfu sér þar sem hvert
og eitt okkar er missterkt á hverju sviði fyrir sig en leggja þurfi rækt
við öll þrjú til að hámarksárangur náist. Sá sem nýtir alla þrjá þættina
til jafns er sá sem nær hámarksárangri eða ef atriðin eru skoðuð með
stærðfræðilegum hætti:
kortlagning + aðgerðir + tenging = Sá sem nær árangri og hannar
framtíð sína.
kortlagning + aðgerðir – tenging = Sá sem er drífandi og kemur
hlutum í verk en án samhengis.
Aðgerðir + tenging – kortlagning = Sá sem rekur með straumnum.
tenging + kortlagning – aðgerðir = Draumóramaðurinn.
Hvaða „týpa“ ert þú og til hvaða aðgerða þarftu að grípa til að
styrkja allar þrjár stoðirnar?