Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2013, Page 65

Frjáls verslun - 01.10.2013, Page 65
FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 65 skoðuð. Þá hefur félagið sam - þykkt jafnréttisstefnu, haldið námskeið og kynningar, farið í herferðir og sýnt auglýsingar svo eitthvað sé nefnt. Þessi barátta hefur skilað ár angri og kynbundinn launa munur samkvæmt niður stöðum launakönnunar hefur dregist verulega saman. Árið 2001 var kynbundinn launamunur 13,8% en var 9,4% samkvæmt niðurstöðum launa- könnunar árið 2013. Munur á heildar laun um hefur minnkað úr 19,7% árið 2001 í 15,4% árið 2013. Í rétta átt „Þessi árangur dugar ekki til og við munum hvergi hvika fyrr en fullu jafnrétti hefur verið náð. Í jafnréttislögum frá 2008 segir að konum og körlum sem starfa hjá sama atvinnurekanda skuli greidd jöfn laun og skuli njóta sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Það er ljóst að jafnrétti verður einungis náð með samstilltu átaki launafólks og atvinnurekenda. Það er mark mið jafnlaunavottunar VR. Því fleiri fyrirtæki sem innleiða kröfur staðalsins, því víðtækari verða áhrif hans. Við bindum miklar vonir við að áhrifa jafnlaunavottunar VR fari að gæta á vinnumarkaði fljót lega og við sjáum launamun kynj- anna dragast enn meira saman. Jafnlaunavottun VR tekur nú þegar til á annan tug fyrirtækja og stofnana eins og áður sagði og er ljóst að þús undir kvenna og karla á ís lenskum vinnumarkaði starfa nú þegar á vinnustöðum þar sem ríkir jafnrétti til launa. Með jafn launavottun axlar VR sína samfélagslegu ábyrgð og vill hvetja atvinnurekendur til að leggja sitt lóð á vogarskálarnar og leiðrétta launamun kynjanna meðal starfsmanna sinna,“ segir Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR.“ Árið 2001 var kyn bund - inn launamunur 13,8% en var 9,4% 2013. Bryndís Guðnadóttir, sérfræðingur á kjaramálasviði Vr, og Ólafía B. rafns­ dóttir, formaður Vr.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.