Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2013, Side 66

Frjáls verslun - 01.10.2013, Side 66
66 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 Jóhanna Hreiðarsdóttir, mannauðsstjóri Kynnisferða. óhanna Hreiðarsdóttir er 29 ára og tók við starfi mannauðsstjóra í mars 2013 en hún hefur starf- að hjá fyrirtækinu síðan 2008. Jóhanna hefur einnig yfir - umsjón með innleiðingu vott - aðra stjórnkerfa hjá fyrirtækinu. Vottunin – staðfesting á jafn launum Kynnisferðir er fyrsta fyrir- tækið í ferðaþjónustu sem er með jafnlaunavottun VR. Hvernig kom það til og hvaða skilyrði þurfti að upp fylla? „Þáverandi formaður og framkvæmdastjóri VR komu að máli við okkur í byrjun ársins og buðu okkur að vera með. Við tókum að sjálfsögðu vel í það enda óeðlilegt í nútíma- sam félagi að óútskýrður launa munur kynj anna innan VR sé 9,4%, og á almenna vinnu markaðnum 18,5%, konum í óhag. Vottunin er stað festing á að fyrirtækið greiði konum og körlum sömu laun fyrir jafnverðmæt störf. Til að uppfylla kröfur jafn - launa staðalsins höfum við inn leitt jafnlaunakerfi, mótað jafn launa stefnu og ákvarðað jafnlauna við mið. Þá lögðum við töluverða vinnu í að skilgreina og flokka störf eftir mikilvægi og fara yfir allar starfslýsingar í fyrirtækinu. Síðan var allt verklag í kringum laun og launa ákvarðanir skjalfest. Við rýnum kerfið reglulega og þjálfum stjórnendur í að nota það. Til að hljóta vottun þarf að fara í gegnum úttektarferli sem BSI á Íslandi sér um og felst í að taka út verklagsreglur og framkvæma launagreiningu. Við erum mjög ánægð með útkomuna úr launa grein ing - unni og að hljóta jafnlauna- vottun VR. Við skorum á önn ur fyrirtæki, sérstaklega í ferða þjónustu, að sækjast eftir vottun og taka þátt í að eyða óút- skýrðum launamun kynj anna á íslenskum vinnu mark aði.“ reka bílaleigu Hvernig gengur starfsemi fyrir ­ tækisins almennt nú þeg ar uppgangur er í ferða þjón ustu? „Umfang starfseminnar hefur aukist undanfarin ár í takt við aukinn fjölda ferðamanna hing- að til lands. Við flytjum um það bil 700 þúsund farþega á ári í öllum okkar ferðum, þar af eru erlendir ferðamenn um 90% farþega. Flotinn okkar telur nú um 70 hópferðabifreiðar sem eru með þeim nýrri á landinu. Nýjasta viðbótin okkar er RE:D- bílaleiga með 50 bíla flota en starfsemi hennar hófst í byrjun sumars.“ REYkjaVIk ExCURSIoNS – kYNNISFERðIR: Umfang starfseminnar hefur aukist J „Við skorum á önnur fyrirtæki, sérstaklega í ferða þjónustu, að sækjast eftir vottun og taka þátt í að eyða óút - skýrðum launamun kynj anna á íslenskum vinnumarkaði.“ TexTi: svava jónsdóTTir Mynd: Geir ólafsson jaFnLaunaVottun Reykjavik Excursions - Kynnisferðir er stolt af því að vera fyrsta ferða þjónustu fyrirtækið til að hljóta Jafnlaunavottun VR. Vottunin staðfestir að konur og karlar fá sömu laun fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf. Stefna fyrirtækisins miðar að því að starfs- fólk njóti sömu launa kjara og eigi jafna mögu leika á að hljóta framgang í starfi. Við setjum jafnrétti í fremsta sætið! Reykjavik Excursions - Kynnisferðir er stolt af því að vera fyrsta ferða þjónustu fyrirtækið til að hljóta Jafnlaunavottun VR. Vottunin staðfestir að konur og karlar fá sömu laun fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf. Stefna fyrirtækisins miðar að því að starfs- fólk njóti sömu launa kjara og eigi jafna mögu leika á að hljóta framgang í starfi. Við setjum jafnrétti í fremsta sætið!

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.