Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2013, Page 81

Frjáls verslun - 01.10.2013, Page 81
FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 81 Að sögn Þórhildar Ólafar Helgadóttur, framkvæmdastjóra fjár málasviðs Securi tas, tók fyrirtækið þá ákvörð un að óska eftir stað fest - ingu á þeim jafnréttis gild um sem starfað er eftir þar á bæ: „Þetta er gæðastimpill fyrir Securitas og verður vonandi til þess að hvetja konur til að sækja um störf hjá okkur en 11% af starfsmönnum fyrirtækisins eru konur. Hins vegar er gaman að segja frá því að þegar nýju jafnréttislögin voru sett sátu þrjár konur í stjórn Securitas en enginn karl - mað ur og við þurftum því að breyta kynjahlutfallinu svo ekki hallaði á karlana. Ég er eina konan í tólf manna fram - kvæmda stjórn í heildina, þar með talið dótturfélögum. Við mættum vissulega bæta okkur þar en staðreyndin er sú að við erum í mjög karllægum rekstri; rafvirkjar og þeir sem almennt eru með raf- og tækni kunnáttu eru langoftast karlmenn. Konur hafa til þessa ekki mikið sótt um að verða öryggisverðir, sem er kannski tengt stöðluðu ímyndinni, en við erum með nokkrar konur í öryggisþjónustunni sem standa sig frábærlega. Verkefni sem henta konum Við erum með ýmis verkefni sem henta konum mjög vel, eins og t.d. aðgangsstýringu í móttöku fyrirtækja, rýrnunar- eftirlit, staðbundin verkefni af ýmsu tagi og yfirsetur á sjúkra - húsum. Verkefni af því tagi hafa aukist gríðarlega á þessu ári sökum þess hve undir mönnuð sjúkrahúsin eru en við erum með sérþjálfað fólk í þeim störfum. Fyrirtæki mannúðar Securitas hefur verið valið fyri r tæki ársins hjá VR enda eru starfsmenn okkar mjög ánægðir með vinnustaðinn sinn. Hjá Securitas erum við starfsfólkið eins og stór fjölskylda. Starfs - aldur er almennt hár, sem endurspeglar að fólki líður vel hér hjá Securitas. Starfs - fólk okkar er stolt af fyrir tæk - inu og starfsánægja er mikil. Það er annasamt hjá okkar fólki í desember. Í mörg ár höfum við sinnt gæslu hjá Fjöl - skylduhjálpinni. Securi tas var nýlega valið fyrir tæki mannúðar hjá Fjöl skyldu hjálpinni og við erum stolt af því. Það er bæði gaman og gefandi að taka þátt í störf um sem eru greinilega unnin af hugsjón og sýna fram á samfélagslega ábyrgð.“ SECURItaS: Gleðilegur gæðastimpill „Hins vegar er gaman að segja frá því að þegar nýju jafnréttislögin voru sett sátu þrjár konur í stjórn Securitas en enginn karlmaður og við þurftum því að breyta kynjahlutfallinu svo ekki hallaði á karlana.“ Þórhildur Ólöf Helgadóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Securitas. Securitas hlaut jafnlaunavottun VR hinn 16. október síðastliðinn. Fyrirtækið hefur þó alltaf starfað samkvæmt þeirri reglu að jafnverðmæt störf hafi sama verðmiðann, óháð kyni. TexTi: Hrund HauksdóTTir / Myndir: Geir ólafsson ofl. jaFnLaunaVottun

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.