Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2013, Side 91

Frjáls verslun - 01.10.2013, Side 91
FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 91 Útlönd næsta skref fyrir þennan vinsæla barnafatnað Hannar undir eigin nafni Helga björnsson Helga Björnsson bjó í París um árabil og starf - aði aðallega við tískuhúsið Louis Feraud, m.a. sem aðalhönnuður þess. Hún hefur búið á Íslandi undanfarin ár og m.a. hannað leikbúninga fyrir uppfærslur í Ís lensku óperunni og Þjóðleikhúsinu og fékk Grímuverðlaunin fyrir búningana í Íslands - klukkunni. Í tilefni af opnun Hörpu fékk hún svo það verkefni að hanna kjóla fyrir konur í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Helga hefur lengi starfað í samvinnu við Gerðar safn og hannað slæður, skartgripi, boli og ýmsa aðra hluti þar sem verk Gerðar Helga - dóttur hafa veitt henni innblástur. „Myndræn verk Gerðar eru endalaus fjár sjóð - ur og ótrúlega gefandi fyrir mig,“ segir Helga. Hún gerði línuna „Born again“ með Eggerti feldskera og vinna þau nú að nýrri línu sem kemur fljótlega á markað. Helga hefur síðustu ár einnig hannað nokkrar línur af slæðum fyrir skartgripafyrirtækið Misaki sem er með höfuðstöðvar í Monte Carlo í Mónakó. Hún er sífellt með eitthvað á prjónunum og um þessar mundir er hún að hanna slæður fyrir nýtt íslenskt merki, Saga Kakala. „Mér líður vel þegar ég fæ frið til að hanna – og þegar ég kemst í almennilegt stuð er mér eiginlega sama hvað ég hanna. Þrátt fyrir að ég sé að undirbúa mína eigin línu hef ég mikla ánægju af að vinna með og hanna fyrir aðra. Þá fer maður í annan gír og vinnur á þeim nótum sem hentar sam starfs- aðilanum og þannig fá hugmyndirnar nýtt og annað líf.“ Helga björnsson. „Þrátt fyrir að ég sé að undirbúa mína eigin línu hef ég mikla ánægju af að vinna með og hanna fyrir aðra.“

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.