Gerðir kirkjuþings - 1996, Síða 253
KIRKJUEIGNANEFND
Borg á Mýrum, 14. okt. 1996
Til biskups íslands, kirkjuráðs og kirkjuþings:
Greinargerð um stöðu viðræðna um kirkjueignir.
Á síðastliðnu hausti, við fráfall séra Þórhalls Höskuldssonar, var undirritaður
skipaður formaður í kirkjueignanefnd þjóðkirkjunnar. Þar sitja nú einnig þeir séra
Halldór Gunnarsson og séra Þórir Stephensen. Mér þykir rétt að gera nokkra grein
fyrir starfi viðræðunefnda ríkis og kirkju, ekki síst vegna þess að nú er kirkjuþing
framundan.
Núverandi staða mála:
Áður en séra Þórhallur lést, hafði hann unnið drög að frumvarpi til laga um
kirkjueignir og launasjóð þjóðkirkjunnar. Meginatriði frumvarpsins var, að stofnaður
yrði launasjóður þjóðkirkjunnar. Launasjóðurinn átti að njóta framlaga úr ríkissjóði,
kristnisjóði, kirkjugarðasjóði og prestssetrasjóði. Gert var ráð fyrir því, að á bak við
framlag ríkisins, sem trygging og endurgjald, stæði arður af kirkjujörðum og andvirði
óseldra og seldra kirkjujarða og ítaka eftir gildistöku laga nr. 46/1907. Þetta
meginatriði var samþykkt afstaða kirkjueignanefndarinnar.
Frumvörp og greinargerðir þær er séra Þórhallur lét eftir sig eru merk og
mikilsverð vinna í þágu þeirra viðræðna er stofnað var til árið 1992. Hér er um að
ræða tugi blaösíðna í formi frumvarpa og greinargerða, er taka til prestslauna,
kirkjujarða, prestssetursjarða, Kristsfjárjarða og annarra kirkjueigna. Séra Þórhallur
vann að þessu verki fram á síðasta dag ævi sinnar.
Eftir andlát séra Þórhalls ákvað kirkjueignanefndin að leggja fyrir viðræðunefnd
ríkisins tillögu að bókun, eða sameiginlegri niðurstöðu. Segja má, að bókunin hafi
geymt öll þau efnisatriði er lágu fyrir í verki séra Þórhalls. Tillagan var lögð fyrir
Þorstein Geirsson, formann viðræðunefndar ríkisins þann 12. október 1995 og er
þannig:
„Viðræðunefnd kirkjunnar hefur lagt fram tillögu í formi frumvarps til laga um
kirkjueignir og launasjóð þjóðkirkjunnar.
Frumvarpið felur í sér, að stofnaður verði launasjóður þjóðkirkjunnar, er standi
straum af launum þeirra embætta þjóðkirkjunnar er lög nr. 62/1990 mæla fyrir um.
Gert er ráð fyrir því, að kirkjujarðir og þær jarðir, ásamt ítökum og öðrum eignum
tengdum þeim, sem seldar hafa verið eftir gildistöku laga um sölu kirkjujarða nr.
46/1907, standi sem höfuðstóll á bak við launasjóðinn.
Staða kristnisjóðs verði tryggð með ákveðnu framlagi. Gert er ráð fyrir því, að
250