Peningamál - 01.08.2001, Page 43
vera staðgengill formanns bankastjórnar í fjarveru
hans.
Formaður bankastjórnar Seðlabankans kallar
bankastjórn saman til fundar. Ávallt skal boðað til
fundar þegar annar hinna bankastjóranna óskar.
Fundurinn er ályktunarhæfur ef meiri hluti banka-
stjórnar situr hann. Afl atkvæða ræður úrslitum við
afgreiðslu mála. Falli atkvæði jafnt ræður atkvæði
formanns bankastjórnar.
Ákvarðanir bankastjórnar skulu skráðar og árit-
aðar af bankastjórn. Bankastjórn setur starfsreglur
sem bankaráð staðfestir um undirbúning, rökstuðn-
ing og kynningu ákvarðana sinna í peningamálum.
Opinberlega skal gerð grein fyrir ákvörðunum
bankastjórnar í peningamálum og forsendum þeirra.
25. gr.
Bankastjórum Seðlabanka Íslands er óheimilt að sitja
í stjórnum stofnana og atvinnufyrirtækja utan bank-
ans eða taka þátt í atvinnurekstri að öðru leyti nema
slíkt sé boðið í lögum eða um sé að ræða stofnun eða
atvinnufyrirtæki sem bankinn á aðild að. Rísi ágrein-
ingur um ákvæði þessarar greinar gagnvart banka-
stjórum skal ráðherra skera úr. Með samþykki banka-
ráðs setur bankastjórn reglur um þátttöku annarra
starfsmanna í stjórnum stofnana og atvinnufyrirtækja
utan bankans, sbr. 28. gr.
26. gr.
Kjósa skal bankaráð Seðlabanka Íslands að loknum
kosningum til Alþingis. Bankaráð skipa sjö fulltrúar
kjörnir hlutbundinni kosningu af Alþingi ásamt jafn-
mörgum til vara. Eigi má kjósa stjórnendur eða
starfsmenn lánastofnana eða annarra fjármálastofn-
ana sem eiga viðskipti við bankann til setu í banka-
ráði. Umboð bankaráðs gildir þar til nýtt bankaráð
hefur verið kjörið. Láti bankaráðsmaður af störfum
tekur varamaður sæti hans þar til Alþingi hefur kosið
nýjan aðalmann til loka kjörtímabils bankaráðsins.
Bankaráð velur formann og varaformann úr eigin
röðum. Ráðherra ákveður þóknun bankaráðs sem
greidd er af Seðlabankanum.
27. gr.
Formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands kallar
bankaráð saman til fundar. Ætíð skal þó halda banka-
ráðsfund þegar tveir bankaráðsmenn óska þess.
Fundur bankaráðs er ályktunarhæfur ef meiri hluti
bankaráðs situr fund. Afl atkvæða ræður úrslitum við
afgreiðslu mála. Falli atkvæði jafnt ræður atkvæði
formanns. Á fundum bankaráðs skal halda gerðabók.
Bankastjórar sitja fundi bankaráðs og taka þátt í
umræðum. Þeir skulu þó víkja af fundi ef bankaráð
ákveður.
28. gr.
Bankaráð hefur eftirlit með því að Seðlabanki Íslands
starfi í samræmi við lög sem um starfsemina gilda.
Bankastjórn skal jafnan upplýsa bankaráð um helstu
þætti í stefnu bankans og um reglur sem hann setur.
Að öðru leyti skal bankaráð sérstaklega sinna eftir-
töldum verkefnum:
a. Staðfesta tillögur bankastjórnar um höfuðþætti í
stjórnskipulagi bankans.
b. Ákveða laun og önnur starfskjör bankastjóra,
þ.m.t. rétt til biðlauna og eftirlauna og önnur
atriði sem varða fjárhagslega hagsmuni þeirra.
c. Hafa umsjón með innri endurskoðun við bankann
og ráða aðalendurskoðanda.
d. Staðfesta starfsreglur sem bankastjórn setur um
undirbúning, rökstuðning og kynningu ákvarðana
í peningamálum, sbr. 24. gr.
e. Staðfesta reglur sem bankastjórn setur um umboð
starfsmanna bankans til þess að skuldbinda
bankann, sbr. 23. gr.
f. Staðfesta kjarasamninga við starfsmenn bankans,
fjalla um reglur um lífeyrissjóð þeirra og stað-
festa skipun fulltrúa í stjórn hans þegar svo ber
undir.
g. Staðfesta tillögu Seðlabankans til forsætisráð-
herra um reglur um reikningsskil og ársreikning
bankans, sbr. 32. gr.
h. Veita forsætisráðherra umsögn um reglugerð um
framkvæmd einstakra þátta laga þessara þegar
svo ber undir, sbr. 39. gr.
i. Staðfesta ársreikning bankans, sbr. 32. gr.
j. Staðfesta áætlun um rekstrarkostnað bankans sem
bankastjórn leggur fram í upphafi hvers starfsárs.
k. Hafa eftirlit með eignum og rekstri bankans og
staðfesta ákvarðanir um meiri háttar fjárfestingar.
l. Staðfesta reglur sem bankastjórn setur um viður-
lög í formi dagsekta, sbr. 37. gr.
m. Staðfesta reglur sem bankastjórn setur um heim-
ild starfsmanna bankans til setu í stjórnum stofn-
ana og atvinnufyrirtækja utan bankans, sbr.
25. gr.
42 PENINGAMÁL 2001/3