Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 7

Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 7
7 r Avarpsorð Eftirfarandi orð eru kafli úr ræðu þeirri, er Jóhann Salberg Guðmundsson, fyrrverandi sýslumaður og stjórnarformaður K.S. flutti er félagið minntist aldarafmælis samvinnuhreyfingarinnar hérlendis. Samvinnuhreyfingin hefir sífellt farið vaxandi á landi hér, eftir því sem árin hafa liðið, og hennar gætir á æ fleiri sviðum þjóðlífsins jafnt og þétt. Hreyfingin er orðin voldug og sterk, og nýtur nú almennrar viðurkenningar og virðingar landsmanna. Hlutur hennar er orðinn mikilvægur í hagkerfí þjóðarinnar, og hefir hún m.a. þau áhrif að draga úr rekstri og afskiptum ríkisvaldsins, jafnframt því sem hreyfingin veitir einkarekstri aðhald með heilbrigðri samkeppni á frjálsum grundvelli. I stefnuskrá samvinnuhreyfingarinnar, sem liggur fyrir í frumvarpsformi, er hreyfingunni lýst og á ýmsan hátt gerð grein fyrir henni. Vil ég í örstuttu máli minna á nokkur helztu atriði í stefnuskránni: Samvinnuhreyfingin er lífsviðhorf. Það er markmið samvinnu- félaga, að menn leysi saman þau verkefni, sem sameiginlegt átak þarf til, og styðji með því eigin velferð og hag annarra jafnframt. Samvinnustefnan er reist á grundvelli félagshyggju og hefir mannúð og réttlæti í heiðri. Hreyfingin byggir á því, að samstarf frjálsra einstaklinga í samvinnufélögum sé öðru fremur vænlegt til að tryggja almenningi réttláta viðskiptahætti og bætt lífskjör. Því er lögð á það áherzla, að öll fyrirtæki innan hreyfmgarinnar starfi ávallt í samræmi við grundvallarhugsjón samvinnumanna. Hreyfingin vill verða öflugur þátttakandi í sókn íslenzku þjóðarinnar til framfara og vinna með öðrum þjóðhollum öflum að því að byggja upp traust efnahagslíf og heilbrigt mannlíf í landinu. Samvinnuhreyfingin á íslandi er m.a. aðili að Alþjóðasamvinnu- sambandinu og leitast við að fara eftir grundvallarreglum þess. Reglurnar eru þessar þær helztu: 1) Aðild að samvinnufélagi er frjáls og opin, án tillits til félagslegrar, stjórnmálalegrar, trúarlegrar eða kynþáttalegrar mismununar.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.