Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 8

Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 8
8 2) Samvinnufélögin eru lýðræðisleg samtök, m.a. er kosningar- réttur jafn (eitt atkvæði fyrir hvern félagsmann). 3) Af framlögðu stofnfé skal greiða takmarkaða vexti, ef greiddir eru. 4) Hagnaður, sem kann að myndast, skal tilheyra félagsmönnum í sameiningu og dreift á einhvern þann hátt, að einstakir menn hagnist ekki á kostnað annarra. Þetta getur gerzt m.a. a) með því að leggja fé til að efla starfsemi félagsins sjálfs, b) með því að leggja fé til almannaheilla, c) með því að skipta fénu milli félagsmanna (arðsúthlutun). 5) Samvinnufélögin skulu annast fræðslu um grundvallarreglur og starfstilhögun samvinnuhreyfingarinnar. 6) Loks er ætlazt til samstarfs samvinnufélaga við önnur samvinnufélög innan landshluta eða landa og á alþjóðavett- vangi. Fleiri atriði mætti hér nefna og fyllra mál hafa, - en ég læt hér staðar munið. Hvað varðar félag vort K.S., þá hefir oft á aðalfundum þess verið gerð grein fyrir starfsemi þess, m.a. allrækilega fyrir 3 árum á 90 ára afmæli þess. K.S. er stærsta fyrirtæki þessa héraðs. Það hefir mesta verzlun og fjölþættast starf allra fyrirtækja héraðsins - og þar af leiðandi er það stærsti atvinnuveitandinn. Þetta veit fólkið í héraðinu og þ.á m. það fólk, sem hér er nú statt, - og þetta veit ég líka, að héraðsbúar almennt viðurkenna og virða, eins og vera ber.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.