Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 8
8
2) Samvinnufélögin eru lýðræðisleg samtök, m.a. er kosningar-
réttur jafn (eitt atkvæði fyrir hvern félagsmann).
3) Af framlögðu stofnfé skal greiða takmarkaða vexti, ef greiddir
eru.
4) Hagnaður, sem kann að myndast, skal tilheyra félagsmönnum í
sameiningu og dreift á einhvern þann hátt, að einstakir menn
hagnist ekki á kostnað annarra. Þetta getur gerzt m.a.
a) með því að leggja fé til að efla starfsemi félagsins sjálfs,
b) með því að leggja fé til almannaheilla,
c) með því að skipta fénu milli félagsmanna (arðsúthlutun).
5) Samvinnufélögin skulu annast fræðslu um grundvallarreglur og
starfstilhögun samvinnuhreyfingarinnar.
6) Loks er ætlazt til samstarfs samvinnufélaga við önnur
samvinnufélög innan landshluta eða landa og á alþjóðavett-
vangi.
Fleiri atriði mætti hér nefna og fyllra mál hafa, - en ég læt hér staðar
munið.
Hvað varðar félag vort K.S., þá hefir oft á aðalfundum þess verið
gerð grein fyrir starfsemi þess, m.a. allrækilega fyrir 3 árum á 90 ára
afmæli þess.
K.S. er stærsta fyrirtæki þessa héraðs. Það hefir mesta verzlun og
fjölþættast starf allra fyrirtækja héraðsins - og þar af leiðandi er það
stærsti atvinnuveitandinn. Þetta veit fólkið í héraðinu og þ.á m. það
fólk, sem hér er nú statt, - og þetta veit ég líka, að héraðsbúar almennt
viðurkenna og virða, eins og vera ber.