Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 13

Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 13
GLÓÐAFEYKIR 13 Brot úr sögu slátrunar á vegum Kaupfélags Skagfirðinga Fyrstu sporin Sláturhúsrekstur á vegum Kaupfélags Skagfirðinga hefst árið 1908. Þá var reist hús til þeirra nota skv. samþykkt aðalfundar félagsins. Voru félagsmenn búnir að fá tvennar teikningar af sláturhúsi. Þær fyrri voru unnar af Ingimar Sigurðssyni búfræðingi, frá Draflastöðum í Fnjóskadal, en þar eð menn voru ekki fyllilega ánægðir með þær, var Rögnvaldur Ólafsson, húsameistari, sem í dag er þekktastur fyrir kirkjurnar á Húsavík og að Hjarðarholti í Dölum, fenginn til að teikna sláturhús, sem reist var og tekið í notkun árið 1908, eins og fyrr segir. Þetta hús stendur að meginhluta til enn, og er austan Aðalgötu, gegnt Gránu. Að vísu hefur það nokkuð breytst frá upphaflegri mynd, en þó er meginhluti þess óbreyttur. Síðar var stofnað sérstakt rekstrarfélag um sláturhúsið, Sláturfélag Skagfirðinga hið elsta. Var fyrst náið samstarf milli þess og kaupfélagsins. Síðar risu þó úfar með félögunum, og leiðir skildu. Upp úr 1930 mun rekstri Sláturfélagsins hafa verið hætt. En 1927 er farið að ræða um að KS byggði frystihús til frystingar og geymslu á kjöti. Markaðir fyrir saltkjöt voru þá að hverfa, en frysting matvæla að stóraukast sem geymslu- og dreifingaraðferð. Varð úr, að félagið hóf byggingu sláturhúss árið 1928 og frystihúss árið eftir. Þessi hús standa enn í dag, en eru hrörleg orðin. Hefur saga þeirra einnig orðið fjölbreyttari en menn hafa efalítið gert sér grein fyrir árið 1928. Þarna er sumsé um að ræða húsin, sem nú geyma vélaverkstæði félagsins og varahlutaverslun og skrifstofur verkstæðanna. Má enn þann dag í dag sjá klefahurðir á geymslulofti yFir búðinni, og veggir skrifstofunnar bera þess merki að vera frystiklefaveggir, því þeir eru afar þykkir. Eitthvað hefur þó einangrun í gólfum klefanna verið misjöfn. Nokkrum árum og jafnvel áratugum eftir að hætt var að nota húsnæðið sem frystiklefa, voru gólf að síga, og telja byggingafróðir menn að ástæðan sé sú, að frost hafi verið að smá fara úr jarðvegi undir gólfunum. Upp úr 1950 var svo farið að reisa sláturhús og frystihús á Eyri, sem tóku til starfa árið 1953. Þóttu þessi húsakynni þá einhver hin

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.