Glóðafeykir - 01.12.1987, Side 13
GLÓÐAFEYKIR
13
Brot úr sögu slátrunar
á vegum Kaupfélags Skagfirðinga
Fyrstu sporin
Sláturhúsrekstur á vegum Kaupfélags Skagfirðinga hefst árið 1908.
Þá var reist hús til þeirra nota skv. samþykkt aðalfundar félagsins.
Voru félagsmenn búnir að fá tvennar teikningar af sláturhúsi. Þær
fyrri voru unnar af Ingimar Sigurðssyni búfræðingi, frá Draflastöðum
í Fnjóskadal, en þar eð menn voru ekki fyllilega ánægðir með þær, var
Rögnvaldur Ólafsson, húsameistari, sem í dag er þekktastur fyrir
kirkjurnar á Húsavík og að Hjarðarholti í Dölum, fenginn til að teikna
sláturhús, sem reist var og tekið í notkun árið 1908, eins og fyrr segir.
Þetta hús stendur að meginhluta til enn, og er austan Aðalgötu, gegnt
Gránu. Að vísu hefur það nokkuð breytst frá upphaflegri mynd, en þó
er meginhluti þess óbreyttur. Síðar var stofnað sérstakt rekstrarfélag
um sláturhúsið, Sláturfélag Skagfirðinga hið elsta. Var fyrst náið
samstarf milli þess og kaupfélagsins. Síðar risu þó úfar með
félögunum, og leiðir skildu. Upp úr 1930 mun rekstri Sláturfélagsins
hafa verið hætt. En 1927 er farið að ræða um að KS byggði frystihús til
frystingar og geymslu á kjöti. Markaðir fyrir saltkjöt voru þá að
hverfa, en frysting matvæla að stóraukast sem geymslu- og
dreifingaraðferð. Varð úr, að félagið hóf byggingu sláturhúss árið 1928
og frystihúss árið eftir. Þessi hús standa enn í dag, en eru hrörleg orðin.
Hefur saga þeirra einnig orðið fjölbreyttari en menn hafa efalítið gert
sér grein fyrir árið 1928. Þarna er sumsé um að ræða húsin, sem nú
geyma vélaverkstæði félagsins og varahlutaverslun og skrifstofur
verkstæðanna. Má enn þann dag í dag sjá klefahurðir á geymslulofti
yFir búðinni, og veggir skrifstofunnar bera þess merki að vera
frystiklefaveggir, því þeir eru afar þykkir. Eitthvað hefur þó einangrun
í gólfum klefanna verið misjöfn. Nokkrum árum og jafnvel áratugum
eftir að hætt var að nota húsnæðið sem frystiklefa, voru gólf að síga, og
telja byggingafróðir menn að ástæðan sé sú, að frost hafi verið að smá
fara úr jarðvegi undir gólfunum.
Upp úr 1950 var svo farið að reisa sláturhús og frystihús á Eyri, sem
tóku til starfa árið 1953. Þóttu þessi húsakynni þá einhver hin