Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 22
22
GLÓÐAFEYKIR
Faðir minn ólst upp á Hraunum í Fljótum, hjá Einari
Guðmundssyni. A Hraunum var stórbúskapur til lands og sjávar.
Fjöldi sauða gekk á Almenningum og hákarlaskipi haldið út á vetrum,
og mun pabbi þar hafa ýmsu vanist á sjó og landi.
Ungur lærði hann söðlasmíði á Akureyri og tók sveinspróf í þeirri
iðn. Þá vann hann og nokkuð við húsasmíðar, og á Siglufirði stundaði
hann smíðar og sjómennsku í nokkur ár, og þar kynntust foreldrar
mínir. Má segja, að þau hafí mæst á miðri leið, hún kom frá Siglunesi,
hann frá Hraunum.
Haustið 1902 fluttust þau á Hofsós, þar sem hann byggði þeim lítið
timburhús, sem nú er búið að rífa. Á Hofsósi voru þau nokkur ár, síðar
eitt ár í Grfarósi, en fluttu að Grafargerði 1909 og bjuggu þar til
æfiloka. Pabbi stundaði með búskapnum iðn sína, söðlasmíði, svo og
húsasmíði. Eru nokkur timburhús enn uppistandandi, sem hann
byggði á Hofsósi.
-Hvað um bernskuárin í Grafargerði?
-Ég átti þar mjög gott bernskuheimili. Pabbi var glaðsinna og
umgekkst okkur strákana sem félaga og vini, einkum þegar við vorum
í veiðiskap, sem oft var.
Mamma var trúkona og indæl móðir. Fátækt var nokkur, en ætíð
nóg að borða. Flest spor mun ég eiga í fjörunni og við sjóinn í
Grafargerði, í leik og starfi, þó nú séu máð, nema í huga mínum.
Ég var ekki stór, þegar pabbi fór að lofa mér með sér að vitja um net
eða færi, og þegar ég stálpaðist, var hugurinn allur við veiðskap. Og
þegar ég horfi um öxl, er ég mjög þakklátur fyrir æskuárin.
-Hver var námsferill þinn?
-Eftir barnaskóla var ég tvo vetur í unglingaskóla í Hofsósi, en vorið
1930 tók ég próf upp í annan bekk héraðsskólans á Laugum. Á
Laugum var gott að vera, margt ungt fólk, piltar og stúlkur, sem
blandaði geði, eins og stór systkinahópur.
Þá sótti ég um 2. bekk Samvinnuskólans, í von um að standast
inntökupróf, þó undirbúningur væri nokkuð af skornum skammti,
einkum í erlendum málum.
Hugmyndin var að vinna á Siglufirði um sumarið fyrir
skólakostnaði, en það fór á annan veg. Er ég hafði verið þar í vikutíma,
veiktist ég af skarlatssótt og var fluttur á spítala. Þar var ég settur í
sóttkví. Var ég þar mikinn hluta sumars, og svo slappur og aumur,
þegar ég losnaði, að ég var algjörlega óvinnufær. Taldi ég nú vonlaust