Glóðafeykir - 01.12.1987, Qupperneq 22

Glóðafeykir - 01.12.1987, Qupperneq 22
22 GLÓÐAFEYKIR Faðir minn ólst upp á Hraunum í Fljótum, hjá Einari Guðmundssyni. A Hraunum var stórbúskapur til lands og sjávar. Fjöldi sauða gekk á Almenningum og hákarlaskipi haldið út á vetrum, og mun pabbi þar hafa ýmsu vanist á sjó og landi. Ungur lærði hann söðlasmíði á Akureyri og tók sveinspróf í þeirri iðn. Þá vann hann og nokkuð við húsasmíðar, og á Siglufirði stundaði hann smíðar og sjómennsku í nokkur ár, og þar kynntust foreldrar mínir. Má segja, að þau hafí mæst á miðri leið, hún kom frá Siglunesi, hann frá Hraunum. Haustið 1902 fluttust þau á Hofsós, þar sem hann byggði þeim lítið timburhús, sem nú er búið að rífa. Á Hofsósi voru þau nokkur ár, síðar eitt ár í Grfarósi, en fluttu að Grafargerði 1909 og bjuggu þar til æfiloka. Pabbi stundaði með búskapnum iðn sína, söðlasmíði, svo og húsasmíði. Eru nokkur timburhús enn uppistandandi, sem hann byggði á Hofsósi. -Hvað um bernskuárin í Grafargerði? -Ég átti þar mjög gott bernskuheimili. Pabbi var glaðsinna og umgekkst okkur strákana sem félaga og vini, einkum þegar við vorum í veiðiskap, sem oft var. Mamma var trúkona og indæl móðir. Fátækt var nokkur, en ætíð nóg að borða. Flest spor mun ég eiga í fjörunni og við sjóinn í Grafargerði, í leik og starfi, þó nú séu máð, nema í huga mínum. Ég var ekki stór, þegar pabbi fór að lofa mér með sér að vitja um net eða færi, og þegar ég stálpaðist, var hugurinn allur við veiðskap. Og þegar ég horfi um öxl, er ég mjög þakklátur fyrir æskuárin. -Hver var námsferill þinn? -Eftir barnaskóla var ég tvo vetur í unglingaskóla í Hofsósi, en vorið 1930 tók ég próf upp í annan bekk héraðsskólans á Laugum. Á Laugum var gott að vera, margt ungt fólk, piltar og stúlkur, sem blandaði geði, eins og stór systkinahópur. Þá sótti ég um 2. bekk Samvinnuskólans, í von um að standast inntökupróf, þó undirbúningur væri nokkuð af skornum skammti, einkum í erlendum málum. Hugmyndin var að vinna á Siglufirði um sumarið fyrir skólakostnaði, en það fór á annan veg. Er ég hafði verið þar í vikutíma, veiktist ég af skarlatssótt og var fluttur á spítala. Þar var ég settur í sóttkví. Var ég þar mikinn hluta sumars, og svo slappur og aumur, þegar ég losnaði, að ég var algjörlega óvinnufær. Taldi ég nú vonlaust
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.