Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 28
28
GLÓÐAFEYKIR
-Opinber störf, Geirmundur?
-Ég var ætíð tregur að taka að mér opinber störf, þó ekki kæmist ég
hjá því með öllu.
Ég var formaður sjúkrasamlags Hofsóss frá stofnun þess 1953 og
gjaldkeri um skeið, í skattanefnd Hofshrepps, endurskoðandi
K.A.S.H., í sýslunefnd Skagafjarðarsýslu 1956 - 1966, endurskoðandi
sýslureikninga sama tíma, í fræðsluráði Sauðárkróks um skeið,
endurskoðandi sjúkrahússreikninga í mörg ár. Þá var ég í varastjórn
K.S. mjög lengi og sat flesta stjórnarfundi þann tíma, þar til ég baðst
undan endurkjöri á síðasta aðalfundi.
-Þú hefur allvíða tekið til höndum. -Hvað viltu svo segja um
samvinnuhreyfinguna í dag?
-Ég er tiltölulega bjartsýnn á framtíð hreyfingarinnar, þó skugga
beri á og meiri en oft áður, aðallega vegna ástands fjármála í landinu.
Það er trúa mín, að breyta verði verulega um viðskiptahætti
samvinnufélaganna, ef vel á að fara. Það er t.d. óhugsandi að lána út
vörur og þjónustu, þegar verðbólga og vextir eru 30-40%. Það hlýtur
að leiða til stórslysa. Þá verður að leggja aukna áherslu á
almannatengsl, einkum við yngra fólkið. Félagsleg deyfð virðist
ótrúlega mikil og fara vaxandi.
-Og að endingu: Hver viltu hafa lokaorð í þessu viðtali?
-Ég vil að lokum þakka öllum samstarfsmönnum mínum og
félögum gott samstarf, svo og viðskiptavinum og öðrum
samferðamönnum góð kynni. Mér finnst, að ég hafi ávallt dvalið og
starfað með góðu fólki.
Og þar með lýkur spjallinu við Geirmund, þennan lífsreynda og
hógværa mann, sem öllum ber saman um, er til þekkja, að í engu mátti
vamm sitt vita.
Til skýringar skal þess getið, að viðtal þetta er tekið á árinu 1985.
Rögnvaldur Gíslason.