Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 28

Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 28
28 GLÓÐAFEYKIR -Opinber störf, Geirmundur? -Ég var ætíð tregur að taka að mér opinber störf, þó ekki kæmist ég hjá því með öllu. Ég var formaður sjúkrasamlags Hofsóss frá stofnun þess 1953 og gjaldkeri um skeið, í skattanefnd Hofshrepps, endurskoðandi K.A.S.H., í sýslunefnd Skagafjarðarsýslu 1956 - 1966, endurskoðandi sýslureikninga sama tíma, í fræðsluráði Sauðárkróks um skeið, endurskoðandi sjúkrahússreikninga í mörg ár. Þá var ég í varastjórn K.S. mjög lengi og sat flesta stjórnarfundi þann tíma, þar til ég baðst undan endurkjöri á síðasta aðalfundi. -Þú hefur allvíða tekið til höndum. -Hvað viltu svo segja um samvinnuhreyfinguna í dag? -Ég er tiltölulega bjartsýnn á framtíð hreyfingarinnar, þó skugga beri á og meiri en oft áður, aðallega vegna ástands fjármála í landinu. Það er trúa mín, að breyta verði verulega um viðskiptahætti samvinnufélaganna, ef vel á að fara. Það er t.d. óhugsandi að lána út vörur og þjónustu, þegar verðbólga og vextir eru 30-40%. Það hlýtur að leiða til stórslysa. Þá verður að leggja aukna áherslu á almannatengsl, einkum við yngra fólkið. Félagsleg deyfð virðist ótrúlega mikil og fara vaxandi. -Og að endingu: Hver viltu hafa lokaorð í þessu viðtali? -Ég vil að lokum þakka öllum samstarfsmönnum mínum og félögum gott samstarf, svo og viðskiptavinum og öðrum samferðamönnum góð kynni. Mér finnst, að ég hafi ávallt dvalið og starfað með góðu fólki. Og þar með lýkur spjallinu við Geirmund, þennan lífsreynda og hógværa mann, sem öllum ber saman um, er til þekkja, að í engu mátti vamm sitt vita. Til skýringar skal þess getið, að viðtal þetta er tekið á árinu 1985. Rögnvaldur Gíslason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.