Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 39

Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 39
GLÓÐAFEYKIR 39 Vart leikur á tveim tungum, að við margvíslega erfiðleika hefur verið að etja. Trúlega hefur þó vegleysið verið mestur Þrándur í Götu fyrstu árin. Víða þurfti að flytja mjólkurbrúsana langar leiðir í veg fyrir mjólkurbílinn, á hestakerrum, reiðingi, sleðum, bátum eða jafnvel bornir á baki. En menn létu slíka erfiðleika ekki á sig fá, enda til nokkurs að vinna. Mjólkurinnlegg var fært til reiknings mánaðarlega, gagnstætt því sem gerðist um sauðfjárafurðir, sem nær eingöngu féllu til tvisvar á ári og þó aðallega á hausti. Það skipti skulduga bændur miklu og þeir voru ófáir, sem þurftu á öllu að halda til að hanga á réttum kili á kreppu og mæðiveikisárunum. „Margs þarfbúið með”,ogað mörgu var að hyggja. Flutningamálin voru tíðum í brennidepli. Áfyrsta starfsári samlagsins, sumarið 1935, voru mjólkurflutningar boðnir út. Var þá gert að skilyrði að þeir, sem flutningana hrepptu, hefðu einnig á hendi flutninga á öllum vörum bænda úr kaupstað og hélst svo lengst af á meðan gamla flutningakerfið var við líði. Síðar voru stofnaðar mjólkurflutninga- nefndir í hreppunum, er önnuðust alla samninga um flutninga á mjólk og vörum. I upphafl var framleiðendum skipt niður í þrjú flutningasvæði. 1. Hólahreppur, Viðvíkursveit, Hegranes. 2. Blönduhlíð, Hólmur. 3. Lýtingsstaðahreppur, Seyluhreppur, Skarðshreppur. En með vaxandi mjólkurmagni raskaðist þessi svæðaskipting. Og vegir bötnuðu smátt og smátt. Árlega miðaði í áttina og raunar ótrúlega hratt, ef haft er í huga, að áhöldin voru skófla, haki og hestakerra. Mjólkursamlagið færði út kvíarnar eftir því, sem ástæður leyfðu hverju sinni. Á útmánuðum 1938 var gerður samningur milli M.S. og mjólkurbúsins á Siglufirði um sölu á mjólk til Siglufjarðar. Mjólkin var frá öndverðu flutt sjóleiðis til Siglufjarðar, allt þar til vegur var lagður yfir Siglufjarðarskarð, en þá komu bílar til yfir sumarið. Árið 1940 var samningur endurnýjaður með nokkrum breytingum til hagsbóta fyrir samlagið. Það sama ár, um haustið, gerðu K.S. og K.E.A., með sér samning um sameiginlega mjólkursölu á Siglufirði. Hélst mjólkursala til Siglufjarðar næstu árin, en var endanlega lokið árið 1971. Árið 1944 hverfur Skafti Óskarsson frá samlaginu en við tekur Sveinn Tryggvason, síðar framkvæmdastjóri Framleiðsluráðs landbúnaðarins. En árið 1945 tekur Jóhann Sólberg Þorsteinsson að sér forstöðu Mjólkursamlagsins og tjaldar ekki til einnar nætur. Hann var mjólkursamlagsstjóri í hálfan fjórða áratug - farsæll maður í starfi. Svo höfðu mál þróast að árið 1946, aðeins ellefu árum eftir að samlagið tók til starfa, var farið að ræða um að byggja að nýju yfir

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.