Glóðafeykir - 01.12.1987, Side 41

Glóðafeykir - 01.12.1987, Side 41
GLÓÐAFEYKIR 41 flutningakerfí. Aðalvegir máttu raunar teljast í viðunandi ástandi en heimreiðir víðast hvar ekki burðugri en svo að traðir máttu kallast. Enn var það, að næstum allsstaðar skorti mjólkurhús á bæjum sem var nauðsynlegur undanfari tankvæðingarinnar. Enda varð sú raunin á, að þó að árlega væri um þessi mál fjallað og að unnið eftir því sem tök voru á, liðu tólf ár frá því að fyrrgreind samþykkt var gerð, þar til fyrstu mjólkinni var dælt á tankbíl, þann 27. apríl 1977, hjá Halldóri bónda í Utvík. Þar með var tankvæðingin hafín og tók að fullu við af gamla flutningamátanum næstu árin. Mjólk tekin á tankbíl í fyrsta sinn til M.S.S. að Útvík. Frá vinstri: Sigurður Sigurðsson Brúnastöðum, samlagsráðsm., Haukur Björnsson bifreiðastj., Helgi Rafn Traustason, kaupfélagsstj. og samlagsráðsm., Sólberg Þorsteinsson samlagsstj. og form. samlagsráðs og Halldór Hafstað bóndi. Tankvæðingin var án efa eitt stærsta framfarasporið er stigið var í sögu mjólkurmála í héraðinu og kom öllum vel og ekki hvað síst þeim er erfiðasta höfðu aðstöðu, þurftu um lengstan veg að flytja mjólkina á veg. Hitt var ekki síður um vert, hversu öll aðstaða til meðferðar mjólkur breyttist til hins betra og nutu bæði framleiðendur og neytendur. Og nú var lokið hartnær hálfrar aldar þætti í atvinnusögu héraðsins, og ekki ómerkum, er gerbreytt flutningakerfi leysti hið gamla af hólmi. Nú var ekki lengur þörf fyrir þá sendiherra sveitaheimilanna, sem gömlu mjólkurbílstjórarnir voru löngum. Þróunin hafði útrýmt þeim, sem slíkum. Trúlega eru þeir margir, sem

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.