Glóðafeykir - 01.12.1987, Qupperneq 41
GLÓÐAFEYKIR
41
flutningakerfí. Aðalvegir máttu raunar teljast í viðunandi ástandi en
heimreiðir víðast hvar ekki burðugri en svo að traðir máttu kallast.
Enn var það, að næstum allsstaðar skorti mjólkurhús á bæjum sem var
nauðsynlegur undanfari tankvæðingarinnar. Enda varð sú raunin á,
að þó að árlega væri um þessi mál fjallað og að unnið eftir því sem tök
voru á, liðu tólf ár frá því að fyrrgreind samþykkt var gerð, þar til
fyrstu mjólkinni var dælt á tankbíl, þann 27. apríl 1977, hjá Halldóri
bónda í Utvík. Þar með var tankvæðingin hafín og tók að fullu við af
gamla flutningamátanum næstu árin.
Mjólk tekin á tankbíl í fyrsta sinn til M.S.S. að Útvík. Frá vinstri: Sigurður
Sigurðsson Brúnastöðum, samlagsráðsm., Haukur Björnsson bifreiðastj.,
Helgi Rafn Traustason, kaupfélagsstj. og samlagsráðsm., Sólberg Þorsteinsson
samlagsstj. og form. samlagsráðs og Halldór Hafstað bóndi.
Tankvæðingin var án efa eitt stærsta framfarasporið er stigið var í
sögu mjólkurmála í héraðinu og kom öllum vel og ekki hvað síst þeim
er erfiðasta höfðu aðstöðu, þurftu um lengstan veg að flytja mjólkina á
veg. Hitt var ekki síður um vert, hversu öll aðstaða til meðferðar
mjólkur breyttist til hins betra og nutu bæði framleiðendur og
neytendur. Og nú var lokið hartnær hálfrar aldar þætti í atvinnusögu
héraðsins, og ekki ómerkum, er gerbreytt flutningakerfi leysti hið
gamla af hólmi. Nú var ekki lengur þörf fyrir þá sendiherra
sveitaheimilanna, sem gömlu mjólkurbílstjórarnir voru löngum.
Þróunin hafði útrýmt þeim, sem slíkum. Trúlega eru þeir margir, sem