Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 48

Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 48
48 GLÓÐAFEYKIR Neðranesi til 1907 og síðan í Ketu til 1919, er foreldrar hans létu af búskap og fluttu til Sauðárkróks. Rafn varð eftir í Ketu og bjó þar í sambýli við systur sína og mág til 1921. Gerðist þá lausamaður og var um hríð til heimilis í Eyhildarholti. „Arið 1924 réðst hann til Eiríks Björnssonar og Margrétar Reginbaldsdóttur, er þá bjuggu á Sjávarborg og síðan á Gili í Borgarsveit, og hjá þeim hjónum átti hann heimili til þess er þau brugðu búi árið 1937” (sr. G.G.). Næstu tvö árin býr Rafn á Gili, þá í Glæsibæ í Staðarhreppi til 1942, er hann kaupir Ashildarholt og býr þar síðan allt til lokadags. „Arið 1950 réðst sem bústýra til Rafns Lilja Gunnlaugsdóttir frá Syðra-Vallholti með börn sín. Koma hennar í Ashildarholt var Rafni mikil gæfa, því af alkunnum myndarskap sínum og góðvild bjó Lilja honum hlýtt og gott heimili”. (sr. G.G.). Rafn í Áshildarholti var mikill maður á velli, hár og þrekinn, enda burðamaður góður, hann var rjóður í andliti, fullur að vöngum, svipfarið markað rósemi, festu og æðruleysi, augnasvipur tiltakanlega hlýr, ef talið barst að hugðarefnum, einkum góðum hestum. Rafni voru margir hlutir vel gefnir. hann var ákaflega geðfelldur í umgengni, trygglyndur og vinafastur. Hann var mikill höfðingi, hjálpfús, greiðvikinn og gestrisinn, svo að frá bar. Hann var góður bóndi og forsjáll, afreksmaður um dugnað og harðfengi og svo óhlífisamur við sjálfan sig, að vísast má fágætt telja. Hann átti við vanheilsu að búa síðara hluta ævinnar, lá oft á sjúkrahúsi þungt haldinn. En jafnskjótt og af honum bráði hverju sinni var hann kominn heim og farinn eitthvað að bjástra. Rafn tók virkan þátt í starfsemi hestamannafélagsins Léttfeta og var kjörinn heiðursfélagi þess er hann varð sjötugur. Með Rafni Sveinssyni féll traustur maður og drengur góður. Hann dó ókvæntur og barnlaus. Rafn Sveinsson Stefán Guðmundsson, f. bóndi á Hrafnhóli í Hjaltadal, lést hinn 9. apríl 1976. Hann var fæddur á Hrafnhóli 29. sept. 1892. Foreldrar: Guðmundur bóndi þar Þorleifsson bónda í Bæ og á Mannskaðahóli á Höfðaströnd, Stefánssonar bónda á Þorsteinsstöðum í Tungusveit,

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.