Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 51

Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 51
GLÓÐAFEYKIR 51 þeldökkur, alúðlegur og hýr í viðmóti. Hann var greindur maður en hlédrægur, sneyddur allri löngun til ytri umsvifa. Hann var á stundum barnalegur í viðræðu og barnslega einlægur að eðlisfari, hrekklaus maður, vandaður og eigi orðskár, trúhneigður maður en bar eigi trú sína á torg. Stefán dó ókvæntur og bamlaus. Gísli Krístjánsson, bóndi Réttarholti í Blönduhlíð, lést hinn 17. maí 1976. Hann var fæddur á Minni-Ökrum í Blönduhlíð 4. maí 1913. Foreldrar: Kristján bóndi þar Gíslason, bónda í Grundarkoti í sömu sveit, Gíslasonar bónda í Litlabæ hjá Flugumýri, Björnssonar bónda í Litladalskoti í Tungusveit, Lúðvíkssonar, og kona hans Aðalbjörg Vagnsdóttir bónda í Miðhúsum í Blönduhlíð, Eiríkssonar, og konu hans Þrúðar Jónsdóttur, bónda í Miðhúsum. Var Aðalbjörg alsystir Stefáns Vagnssonar, sjá Glf. 1972, 13. h. bls. 56. Gísli ólst upp með foreldrum sínum fram um fermingaraldur, elstur 6 barna þeirra hjóna. Var svo á ýmsum stöðum uns hann kvæntist eftirlifandi konu sinni árið 1918, Jóhönnu Freyju Jónsdóttur bónda í Réttarholti, Sigurðssonar, og konu hans Sigríðar Rögnvaldsdóttur, sjá þætti um þau hjón í Glf. 1977, 18. h. bls. 46 og 55. Ungu hjónin reistu þegar bú í Réttarholti, fyrst á móti foreldrum Jóhönnu, meðan lifðu og héldu heilsu. Réttarholt er falleg jörð og skemmtileg og Gísli gróandans maður, góður og hygginn bóndi og snyrtimenni í öllum búnaði, bætti húsakost jarðarinnar og færði mjög út hið ræktaða land. Hann vék sér undan opinberum störfum, var heimakær, stundaði bú sitt og heimili af stakri alúð og kostgæfni hin ósérhlífna manns, sem veit og Finnur ósjálfrátt að starf bóndans, sem af alúð er unnið, ber í sjálfu sér bestu launin: mesta ánægju, mestan fögnuð og fyllingu lífs. Þrjú eru börn þeirra Réttarholtshjóna: Jón, bóndi í Réttarholti, Þrúður, húsfr. á Akureyri og Sigurður, enn í heimahúsum. Son átti Gísli utan hjónabands með Birnu Jónsdóttur, Birgi, dvelst hann með móður sinni og stjúpföður á Torfastöðum í Grafningi. Gísli Kristjánsson

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.