Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 51
GLÓÐAFEYKIR
51
þeldökkur, alúðlegur og hýr í viðmóti. Hann var greindur maður en
hlédrægur, sneyddur allri löngun til ytri umsvifa. Hann var á stundum
barnalegur í viðræðu og barnslega einlægur að eðlisfari, hrekklaus
maður, vandaður og eigi orðskár, trúhneigður maður en bar eigi trú
sína á torg.
Stefán dó ókvæntur og bamlaus.
Gísli Krístjánsson, bóndi Réttarholti í Blönduhlíð, lést hinn 17. maí
1976.
Hann var fæddur á Minni-Ökrum í Blönduhlíð 4. maí 1913.
Foreldrar: Kristján bóndi þar Gíslason, bónda í Grundarkoti í sömu
sveit, Gíslasonar bónda í Litlabæ hjá Flugumýri, Björnssonar bónda í
Litladalskoti í Tungusveit, Lúðvíkssonar, og
kona hans Aðalbjörg Vagnsdóttir bónda í
Miðhúsum í Blönduhlíð, Eiríkssonar, og
konu hans Þrúðar Jónsdóttur, bónda í
Miðhúsum. Var Aðalbjörg alsystir Stefáns
Vagnssonar, sjá Glf. 1972, 13. h. bls. 56.
Gísli ólst upp með foreldrum sínum fram
um fermingaraldur, elstur 6 barna þeirra
hjóna. Var svo á ýmsum stöðum uns hann
kvæntist eftirlifandi konu sinni árið 1918,
Jóhönnu Freyju Jónsdóttur bónda í
Réttarholti, Sigurðssonar, og konu hans
Sigríðar Rögnvaldsdóttur, sjá þætti um þau
hjón í Glf. 1977, 18. h. bls. 46 og 55.
Ungu hjónin reistu þegar bú í Réttarholti,
fyrst á móti foreldrum Jóhönnu, meðan lifðu
og héldu heilsu. Réttarholt er falleg jörð og
skemmtileg og Gísli gróandans maður,
góður og hygginn bóndi og snyrtimenni í
öllum búnaði, bætti húsakost jarðarinnar og færði mjög út hið ræktaða
land. Hann vék sér undan opinberum störfum, var heimakær,
stundaði bú sitt og heimili af stakri alúð og kostgæfni hin ósérhlífna
manns, sem veit og Finnur ósjálfrátt að starf bóndans, sem af alúð er
unnið, ber í sjálfu sér bestu launin: mesta ánægju, mestan fögnuð og
fyllingu lífs.
Þrjú eru börn þeirra Réttarholtshjóna: Jón, bóndi í Réttarholti,
Þrúður, húsfr. á Akureyri og Sigurður, enn í heimahúsum. Son átti Gísli
utan hjónabands með Birnu Jónsdóttur, Birgi, dvelst hann með móður
sinni og stjúpföður á Torfastöðum í Grafningi.
Gísli
Kristjánsson