Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 60

Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 60
60 GLÓÐAFEYKIR aðalfundum Kaupfélags Skagfirðinga. Jón Gíslason var ríflega meðalmaður á vöxt, liðlegur í hreyfmgum, beinvaxinn og kvikur á velli til efsta dags, gekk aldrei í sig. Hann var óvenju svipgóður maður, dökkhærður og þó ljós á yflrbragð, bláeygur, brúnamikill, augun snör og á stundum hvöss, fasið fumlaust, lundin ör og skapið ríkt, öldurnar fljótar að ýfast og lægja, sáttfús, ef í milli bar, en lét eigi segja sér fyrir verkum, kjarkmaður, hugreifur og ávallt æðrulaus. Hann var hýr í viðmóti og hlýr í lund, hafði óvenju næmt auga og eyra fyrir því sem skoplegt var, glaðastur manna í glöðum hópi. Hann var indælisdrengur, sem gott var að eiga að vini og samferðamanni og hverjum manni eftirsjá í þessum prúða, silfurhára öldungi. Jón í Miðhúsum var prýðilega greindur maður, las mikið og mundi vel. Hann var ágætlega fróður, einkum í sögu og ættvísi, hafði yndi af þeim fræðum sem þeir frændur fleiri og gott við hann að ræða um þá hluti. Jón Normann Jónasson. kennari og bóndi á Selnesi á Skaga, varð bráðkvaddur 22. sept. 1976. Hann var fæddur í Hróarsdal í Hegranesi 7. ágúst 1898, sonur Jónasar bónda þar og sýslun.m. Jónssonar og 3. konu hans Lilju Jónsdóttur bónda á Syðstu-Grund í Blönduhlíð. Var Jón á Selnesi albróðir Vilhjálms á Ytri-Brekkum, sjá Glóðaf., 5. h. bls. 27, elstur þeirra alsystkina, barna Lilju. Jón óx upp með foreldrum sínum í Hróarsdal; voru börnin mörg og heimilið fátækt en þó eigi þurfandi, enda ýmis útispjót höfð til bjargar með búskapnum, sem aldrei var stór í sniðum, svo sem veiðiskapur í Héraðsvötnum o.fl. Jónas í Hróarsdal var smáskammtalæknir, gáfu- maður talinn og fræðasjór, þess nutu börn hans ríkulega, sóttu og margt til hans sum. Á unglingsárum sótti Jón nokkuð vinnu utan heimilis og þá á ýmsum stöðum. Stundaði nám við Hólaskóla og lauk búfræðiprófi 1923, kennaraprófi frá Kennaraskóla íslands 1929, fór námsferðir til útlanda 1935, 1956 og 1957. Forfallakennari við barnaskóla í Reykjavík veturinn 1929-1930, fastur kennari við Austurbæjarskólann í Reykjavík 1930-1957. Bóndi á Selnesi 1957 og Jón Normann Jónasson

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.