Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 60
60
GLÓÐAFEYKIR
aðalfundum Kaupfélags Skagfirðinga.
Jón Gíslason var ríflega meðalmaður á vöxt, liðlegur í hreyfmgum,
beinvaxinn og kvikur á velli til efsta dags, gekk aldrei í sig. Hann var
óvenju svipgóður maður, dökkhærður og þó ljós á yflrbragð, bláeygur,
brúnamikill, augun snör og á stundum hvöss, fasið fumlaust, lundin ör
og skapið ríkt, öldurnar fljótar að ýfast og lægja, sáttfús, ef í milli bar,
en lét eigi segja sér fyrir verkum, kjarkmaður, hugreifur og ávallt
æðrulaus. Hann var hýr í viðmóti og hlýr í lund, hafði óvenju næmt
auga og eyra fyrir því sem skoplegt var, glaðastur manna í glöðum
hópi. Hann var indælisdrengur, sem gott var að eiga að vini og
samferðamanni og hverjum manni eftirsjá í þessum prúða, silfurhára
öldungi.
Jón í Miðhúsum var prýðilega greindur maður, las mikið og mundi
vel. Hann var ágætlega fróður, einkum í sögu og ættvísi, hafði yndi af
þeim fræðum sem þeir frændur fleiri og gott við hann að ræða um þá
hluti.
Jón Normann Jónasson. kennari og bóndi á Selnesi á Skaga, varð
bráðkvaddur 22. sept. 1976.
Hann var fæddur í Hróarsdal í Hegranesi 7. ágúst 1898, sonur
Jónasar bónda þar og sýslun.m. Jónssonar
og 3. konu hans Lilju Jónsdóttur bónda á
Syðstu-Grund í Blönduhlíð. Var Jón á
Selnesi albróðir Vilhjálms á Ytri-Brekkum,
sjá Glóðaf., 5. h. bls. 27, elstur þeirra
alsystkina, barna Lilju.
Jón óx upp með foreldrum sínum í
Hróarsdal; voru börnin mörg og heimilið
fátækt en þó eigi þurfandi, enda ýmis
útispjót höfð til bjargar með búskapnum,
sem aldrei var stór í sniðum, svo sem
veiðiskapur í Héraðsvötnum o.fl. Jónas í
Hróarsdal var smáskammtalæknir, gáfu-
maður talinn og fræðasjór, þess nutu börn
hans ríkulega, sóttu og margt til hans sum.
Á unglingsárum sótti Jón nokkuð vinnu
utan heimilis og þá á ýmsum stöðum.
Stundaði nám við Hólaskóla og lauk
búfræðiprófi 1923, kennaraprófi frá Kennaraskóla íslands 1929, fór
námsferðir til útlanda 1935, 1956 og 1957. Forfallakennari við
barnaskóla í Reykjavík veturinn 1929-1930, fastur kennari við
Austurbæjarskólann í Reykjavík 1930-1957. Bóndi á Selnesi 1957 og
Jón Normann
Jónasson