Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 64

Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 64
64 GLÓÐAFEYKIR greindur, geðrór og hæglátur, en þætti honum sem sér misboðið í orðum eða ávarpi, sem raunar var eigi títt, brast eigi orð til andsvara. Eigi var Guðmundur til mennta settur á yngri árum og hefði þó betur notið en margur sá, er lengi „lærir” Vetrartima var hann í unglingaskóla, er Margeir fræðimaður Jónsson á Ögmundarstöðum hélt uppi um skeið, og bjó að lengi og vel. Hann var listaskrifari. Sönghneigður var hann og raddmaður mikill sem fleiri þeir frændur. Hann var einlægur trúmaður, sat lengi í sóknarnefnd Silfra- staðasóknar, lét málefni kirkju sinnar til sín taka og ávallt á einn veg - þann er bezt gegndi. Guðmundur var glaðlegur í viðmóti, eigi glæsimenni, en framkoman þannig, að eftir honum var tekið. Hann var í eðli sínu félagslyndur, hafði yndi af gestakomu, átti ávallt tár á glasi, naut þess að veita góðum gestum og blanda við þá geði. Kunningjum sínum var hann hlýr og hjálpsamur, allra manna fúsastur að ganga í ábyrgð fyrir lánum og nutu þess margir. Gunnar Valdemarsson var smábóndi á litlu býli. Sjálfsagt hefði hann betur notið greindar sinnar og hæfileika ef markað hefði sér víðari vang. Þó naut hann lífsfyllingar í samskiptum sínum við skepnurnar, við náttúruna, lifandi og dauða, - fullnægju, sem felst í þeirri höfuðdyggð, að gera meiri kröfur til sjálfs sín en annarra. Guðmundur dó ókvæntur og barnlaus. Karl ValdimarKonráiSsson , bóndi á Auðnum í Sæmundarhlíð, lézt með voveiflegum ætti hinn 28. okt. 1976. Hann var fæddur að Skarðsá í Sæmundarhlíð 25. des. 1897. Var faðir hans Konráð síðar bóndi á Skarðsá Konráðssonar, bónda á Skörðugili ytra á Langholti o.v., Jóhannssonar bónda á Skörðugili syðra, Jónssonar. Móðir Karls var Steinunn Stefánsdóttir bónda í Pyttagerði í Staðarhr. o.v., Hannessonar bónda á Reykjarhóli í Seyluhr., Þorvaldssonar, og konu hans Hólmfríðar Arnadóttur, en hún var dótturdóttir Hólmfríðar húsfreyju í Asgeirsbrekku, Þorláksdóttur ríka á Stóru-Ökrum, Símonarsonar. Meðal barna Hannesar á Reykjahóli og Hólmfríðar yngri var Guðbjörg, móðir Stephans G. Stephanssonar Klettafjallaskálds. Móðir Konráðs á Skörðugili, langamma Karls á Auðnum, var Filippía Gísladóttir Guðmundur Valdemarsson

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.