Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 64
64
GLÓÐAFEYKIR
greindur, geðrór og hæglátur, en þætti honum sem sér misboðið í
orðum eða ávarpi, sem raunar var eigi títt, brast eigi orð til andsvara.
Eigi var Guðmundur til mennta settur á yngri árum og hefði þó betur
notið en margur sá, er lengi „lærir” Vetrartima var hann í
unglingaskóla, er Margeir fræðimaður Jónsson á Ögmundarstöðum
hélt uppi um skeið, og bjó að lengi og vel. Hann var listaskrifari.
Sönghneigður var hann og raddmaður mikill
sem fleiri þeir frændur. Hann var einlægur
trúmaður, sat lengi í sóknarnefnd Silfra-
staðasóknar, lét málefni kirkju sinnar til sín
taka og ávallt á einn veg - þann er bezt
gegndi.
Guðmundur var glaðlegur í viðmóti, eigi
glæsimenni, en framkoman þannig, að eftir
honum var tekið. Hann var í eðli sínu
félagslyndur, hafði yndi af gestakomu, átti
ávallt tár á glasi, naut þess að veita góðum
gestum og blanda við þá geði. Kunningjum
sínum var hann hlýr og hjálpsamur, allra
manna fúsastur að ganga í ábyrgð fyrir
lánum og nutu þess margir.
Gunnar Valdemarsson var smábóndi á
litlu býli. Sjálfsagt hefði hann betur notið greindar sinnar og hæfileika
ef markað hefði sér víðari vang. Þó naut hann lífsfyllingar í
samskiptum sínum við skepnurnar, við náttúruna, lifandi og dauða, -
fullnægju, sem felst í þeirri höfuðdyggð, að gera meiri kröfur til sjálfs
sín en annarra.
Guðmundur dó ókvæntur og barnlaus.
Karl ValdimarKonráiSsson , bóndi á Auðnum í Sæmundarhlíð, lézt
með voveiflegum ætti hinn 28. okt. 1976.
Hann var fæddur að Skarðsá í Sæmundarhlíð 25. des. 1897. Var
faðir hans Konráð síðar bóndi á Skarðsá Konráðssonar, bónda á
Skörðugili ytra á Langholti o.v., Jóhannssonar bónda á Skörðugili
syðra, Jónssonar. Móðir Karls var Steinunn Stefánsdóttir bónda í
Pyttagerði í Staðarhr. o.v., Hannessonar bónda á Reykjarhóli í
Seyluhr., Þorvaldssonar, og konu hans Hólmfríðar Arnadóttur, en
hún var dótturdóttir Hólmfríðar húsfreyju í Asgeirsbrekku,
Þorláksdóttur ríka á Stóru-Ökrum, Símonarsonar. Meðal barna
Hannesar á Reykjahóli og Hólmfríðar yngri var Guðbjörg, móðir
Stephans G. Stephanssonar Klettafjallaskálds. Móðir Konráðs á
Skörðugili, langamma Karls á Auðnum, var Filippía Gísladóttir
Guðmundur
Valdemarsson