Glóðafeykir - 01.12.1987, Side 67
GLÓÐAFEYKIR
67
hann úr öskustó og gerði að góðbýli. Hann reisti hús, ræsti fram og
ræktaði, en ætlaði sér ávallt af og sá fótum sínum forráð, enda bæði
hygginn og forsjáll. Hann tók fyrir eina spilduna af annarri, ár eftir ár,
svo að fyrir nokkru er orðið samfellt túnflæmi, þar sem áður voru rýrar
mýrarflatneskjur. Jarðarheitið Grænumýri var vel valið. Jón var
ræktunarmaður af lífi og sál, naut út í æsar að sjá græna sprota gægjast
upp úr moldinni, vaxa úr móðurskauti jarðar. Gleði hans var djúp og
rík þegar nýjar sléttur skrýddust grænu flosi og gáfu von um arð.
Jón í Grænumýri var farinn að heilsu síðustu árin, sem hann lifði, og
dvaldist þá lengstum á sjúkrahúsi, fékk þó að fara heim við og við og
vera heima nokkra daga í senn. Fyrstu árin eftir að hætta varð
áreynsluvinnu, annaðist hann með aðstoð konu sinnar brúarvörzlu við
Grundarstokksbrú. Þar var gott að koma til þeirra Gunnhildar í litla
skúrinn.
Jón Þ. Stefánsson var meðalmaður vexti, léttur og kvikur á fæti,
fríðleiksmaður, sviphýr og brosmildur. Hann var prýðilega greindur,
gamansamur og ræðinn, sagði sögur, stundum ýktar, en engum til
meins, öðrum jafnan aufúsugestur. Hann var mikill þrifnaðarbóndi,
sparsamur, nýtinn og nostursamur, naumur, svo að stundum var um
of. Hann var ákaflega barngóður, börn og unglingar hændustu að
honum ósjálfrátt og fundu, að þar fór einlægur vinur þeirra. Sá er
naumast á flæðiskeri staddur, sem á börn að vinum.
Flóvent Albertsson, bifreiðastjóri á Sauðárkróki varð bráðkvaddur
hinn 26. nóv. 1976.
Hann var fæddur á Hólum í Hjaltadal 16. febrúar 1904, sonur
Alberts bónda á Torfhóli í Óslandshlíð, síðast húsm. í Djúpadal í
Blönduhlíð, Tómassonar bónda á Framlandi í Hörgárdal,
Guðmundssonar bónda í Asgerðarstaðaseli í sömu sveit,
Gunnlaugssonar, og konu hans Kristínar Sveinsdótur síðast bónda að
Dæli í Fljótum, Sveinssonar, en kona Sveins í Dæli og móðir Kristínar
var Ingiríður Þorláksdóttir.
Foreldrar Flóvents slitu samvistum er hann var í bernsku. Fyrstu
árin var hann á vegum föður síns, en fór 9 ára gamall til þeirra hjóna
Tobíasar Magnússonar og Sigþrúðar Helgadóttur í Geldingaholti og
óxþarupp til 18 ára aldurs, en Sigþrúður andaðist árið 1919ogTobías
þremur árum síðar. Minntist Flóvent oft dvalar sinnar í
Geldingaholti, því mikla myndarheimili fyrr og síðar, og jafnan með
virðingu og hlýjum huga.