Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 67

Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 67
GLÓÐAFEYKIR 67 hann úr öskustó og gerði að góðbýli. Hann reisti hús, ræsti fram og ræktaði, en ætlaði sér ávallt af og sá fótum sínum forráð, enda bæði hygginn og forsjáll. Hann tók fyrir eina spilduna af annarri, ár eftir ár, svo að fyrir nokkru er orðið samfellt túnflæmi, þar sem áður voru rýrar mýrarflatneskjur. Jarðarheitið Grænumýri var vel valið. Jón var ræktunarmaður af lífi og sál, naut út í æsar að sjá græna sprota gægjast upp úr moldinni, vaxa úr móðurskauti jarðar. Gleði hans var djúp og rík þegar nýjar sléttur skrýddust grænu flosi og gáfu von um arð. Jón í Grænumýri var farinn að heilsu síðustu árin, sem hann lifði, og dvaldist þá lengstum á sjúkrahúsi, fékk þó að fara heim við og við og vera heima nokkra daga í senn. Fyrstu árin eftir að hætta varð áreynsluvinnu, annaðist hann með aðstoð konu sinnar brúarvörzlu við Grundarstokksbrú. Þar var gott að koma til þeirra Gunnhildar í litla skúrinn. Jón Þ. Stefánsson var meðalmaður vexti, léttur og kvikur á fæti, fríðleiksmaður, sviphýr og brosmildur. Hann var prýðilega greindur, gamansamur og ræðinn, sagði sögur, stundum ýktar, en engum til meins, öðrum jafnan aufúsugestur. Hann var mikill þrifnaðarbóndi, sparsamur, nýtinn og nostursamur, naumur, svo að stundum var um of. Hann var ákaflega barngóður, börn og unglingar hændustu að honum ósjálfrátt og fundu, að þar fór einlægur vinur þeirra. Sá er naumast á flæðiskeri staddur, sem á börn að vinum. Flóvent Albertsson, bifreiðastjóri á Sauðárkróki varð bráðkvaddur hinn 26. nóv. 1976. Hann var fæddur á Hólum í Hjaltadal 16. febrúar 1904, sonur Alberts bónda á Torfhóli í Óslandshlíð, síðast húsm. í Djúpadal í Blönduhlíð, Tómassonar bónda á Framlandi í Hörgárdal, Guðmundssonar bónda í Asgerðarstaðaseli í sömu sveit, Gunnlaugssonar, og konu hans Kristínar Sveinsdótur síðast bónda að Dæli í Fljótum, Sveinssonar, en kona Sveins í Dæli og móðir Kristínar var Ingiríður Þorláksdóttir. Foreldrar Flóvents slitu samvistum er hann var í bernsku. Fyrstu árin var hann á vegum föður síns, en fór 9 ára gamall til þeirra hjóna Tobíasar Magnússonar og Sigþrúðar Helgadóttur í Geldingaholti og óxþarupp til 18 ára aldurs, en Sigþrúður andaðist árið 1919ogTobías þremur árum síðar. Minntist Flóvent oft dvalar sinnar í Geldingaholti, því mikla myndarheimili fyrr og síðar, og jafnan með virðingu og hlýjum huga.

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.