Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 68
68
GLÓÐAFEYKIR
Snemma varð Flóvent að taka til hendi, eins og títt var um unglinga í
þann tíð, og reyndist liðtækur í bezta lagi við hvers konar störf bæði til
lands og sjávar. Eftir að æsku- og unglingsárum í Geldingaholti
sleppti, réðst hann í vist á ýmsum stöðum hér
í framsveitum: Syðra Vallholti, Syðra-Vatni
á Efribyggð, vetrarlangt í Húsey. Þá réri
hann nokkrar vetrarvertíðir í Vestmanna-
eyjum, en var í vegavinnu að vori og sumri
hjá Friðriki Hansen. Flóvent átti heimilis-
fang á Sauðárkróki frá 1934 eða þar um bil.
42 ár stundaði hann bifreiðaakstur sem
aðalatvinnu, var fyrstu árin lengi vel með
vörubíl, en síðari árin mörg með fólksbifreið.
Hann var mjög hæfur bílstjóri, gætinn,
öruggur og úrræðagóður.
Arið 1934 kvæntist Flóvent Guðrúnu
Blöndal Ágústsdóttur frá Fögrubrekku í
Hrútafírði. Börn þeirra eru tvö: Gunnar
Blöndal, bílstjóri hjá K.S. á Sauðárkr. og
Gyða Blöndal, húsfr. á Sauðárkróki. Barn
Flóvents með Sigurlaugu Þorkelsdóttur frá Ingveldarstöðum er Erna,
húsfr. á Sauðárkr.
Flóvent Albertsson var meðalmaður á velli, holdskarpur, svipurinn
markaður djúpum dráttum, ennið hátt, augun gráblá. Hann var mikill
skýrleiksmaður, bókhneigður og las mikið, prúður maður og stilltur í
framgöngu, jafnlyndur, fámáll og mælti eigi styggðaryrði til nokkurs
manns. Hann unni ljóðum og söng, hafði djúpa rödd og blæmjúka, tók
um skeið ríkan þátt í sönglífi Sauðárkróks og „ljóðaði sjálfur í
leyndum”. Hann var gamansamur en hljóðlátur í gleði sinni, vinsæll
maður, traustur og öruggur í öllum vanda, ráðvandur og reglusamur,
svo að orð fór af.
%
Flóvent
Albertsson
Ingibjörg Björnsdóttir, húsfr. á Sauðárkróki, varð bráðkvödd hinn
27. nóv. 1976.
Hún var fædd að Krithóli á Neðribyggð 4. ágúst 1915, dóttir Björns
bónda þar Árnasonar og konu hans Jóhönnu Guðlaugar
Sæmundsdóttur, sjá þátt um Björn í Glóðaf. 1969, 9. h. bls. 54.
Ingibjörg ólst upp með foreldrum sínum á Krithóli til 1929, er
fjölskyldan fluttist að Hamarsgerði á Fremribyggð og var þar í
húsmennsku eitt ár, en hvarf svo aftur að Krithóli og 1931 að
Krithólsgerði, gömlu eyðibýli, er Björn hafði þá reist úr rústum. Þar