Glóðafeykir - 01.12.1987, Side 68

Glóðafeykir - 01.12.1987, Side 68
68 GLÓÐAFEYKIR Snemma varð Flóvent að taka til hendi, eins og títt var um unglinga í þann tíð, og reyndist liðtækur í bezta lagi við hvers konar störf bæði til lands og sjávar. Eftir að æsku- og unglingsárum í Geldingaholti sleppti, réðst hann í vist á ýmsum stöðum hér í framsveitum: Syðra Vallholti, Syðra-Vatni á Efribyggð, vetrarlangt í Húsey. Þá réri hann nokkrar vetrarvertíðir í Vestmanna- eyjum, en var í vegavinnu að vori og sumri hjá Friðriki Hansen. Flóvent átti heimilis- fang á Sauðárkróki frá 1934 eða þar um bil. 42 ár stundaði hann bifreiðaakstur sem aðalatvinnu, var fyrstu árin lengi vel með vörubíl, en síðari árin mörg með fólksbifreið. Hann var mjög hæfur bílstjóri, gætinn, öruggur og úrræðagóður. Arið 1934 kvæntist Flóvent Guðrúnu Blöndal Ágústsdóttur frá Fögrubrekku í Hrútafírði. Börn þeirra eru tvö: Gunnar Blöndal, bílstjóri hjá K.S. á Sauðárkr. og Gyða Blöndal, húsfr. á Sauðárkróki. Barn Flóvents með Sigurlaugu Þorkelsdóttur frá Ingveldarstöðum er Erna, húsfr. á Sauðárkr. Flóvent Albertsson var meðalmaður á velli, holdskarpur, svipurinn markaður djúpum dráttum, ennið hátt, augun gráblá. Hann var mikill skýrleiksmaður, bókhneigður og las mikið, prúður maður og stilltur í framgöngu, jafnlyndur, fámáll og mælti eigi styggðaryrði til nokkurs manns. Hann unni ljóðum og söng, hafði djúpa rödd og blæmjúka, tók um skeið ríkan þátt í sönglífi Sauðárkróks og „ljóðaði sjálfur í leyndum”. Hann var gamansamur en hljóðlátur í gleði sinni, vinsæll maður, traustur og öruggur í öllum vanda, ráðvandur og reglusamur, svo að orð fór af. % Flóvent Albertsson Ingibjörg Björnsdóttir, húsfr. á Sauðárkróki, varð bráðkvödd hinn 27. nóv. 1976. Hún var fædd að Krithóli á Neðribyggð 4. ágúst 1915, dóttir Björns bónda þar Árnasonar og konu hans Jóhönnu Guðlaugar Sæmundsdóttur, sjá þátt um Björn í Glóðaf. 1969, 9. h. bls. 54. Ingibjörg ólst upp með foreldrum sínum á Krithóli til 1929, er fjölskyldan fluttist að Hamarsgerði á Fremribyggð og var þar í húsmennsku eitt ár, en hvarf svo aftur að Krithóli og 1931 að Krithólsgerði, gömlu eyðibýli, er Björn hafði þá reist úr rústum. Þar

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.