Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1991, Page 120

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1991, Page 120
Jóhann Hannesson 4,18). Síðan settist hann, svo sem gert var ráð fyrir í þeirrar tíðar helgisiðum, og tók til að leggja út textann: í dag hefir rætzt þessi ritn- ingargrein, sem þér nú hafið heyrt. Þau orð, sem guðspjallið geymir, eru þó sennilega ekki nema örlítið brot af þeirri ræðu, sem hann raun- verulega flutti, og menn undruðust fyrir þau undursamlegu orð, sem fram gengu af munni hans. (Samkvæmt þriðju textaröð vorri kemur Lúkasartextinn á 1. sunnudag í aðventu.) Hér liggur fyrir samtíma frásögn af venjulegri sabbatsguðsþjónustu Gyðinga, ein af þeim örfáu frásögum, sem varðveitzt hafa um þess konar guðsþjónustu. Hér er ástæða til að gefa gaum að þrennu: a) Guðsþjónustan er í vissum skilningi liturgisk. Hátíðlegur upplestur úr ritum spámannanna var hluti af liturgíu í samkundu Gyðinga. b) Upplestur textans er þama sérstakur liður. c) Jesús útleggur textann og flytur þar með áheyrendum sínum boðskap, sem hann hagnýtir í túlkun textans. Hann boðar að uppfylling spámannsorðsins eigi sér stað hér og nú, á þeirri stund og þeim stað, sem hann talar. 3. Fyrirmyndir og hliöstæður Hin kristna boðun orðsins á sér fyrirmyndir í trúarbragðasögunni. Það er einkum hin hómiletiska gerð prédikunar, sem á sér forsögu í samkundu ísraels. Og það er eðlilegt að líta á prédikun kirkjunnar sem framhald af verki Jesú sjálfs og postulanna. Talað orð er það tæki, sem skapar kirkjuna frá fyrstu stund. í öðrum trúarbrögðum er lítið um hliðstæður, utan í Múhameðstrú, íslam. Siðaprédikanir em hins vegar víða kunnar, t.d. frá grískum heimspekiskólum, bæði hinum kyniska og Stóu, og áhrifin blönduðust saman í því ræðuformi, sem nefnist díatríbe. Siðaprédikanir em einnig kunnar úr Mahayanabúddhadómi. En texta- útlegging, líkt og hjá synagógu og fomkirkju, voru þessar prédikanir ekki. Biblíuleg trú heldur prédikuninni sem einu veigamesta sérkenni sínu. Prédikunin greinist þannig frá upphafi vega frá öðrum gerðum talaðs orðs, og þar með einnig frá heimspekilegri og pólítiskri mælsku- list. 4. Nokkur sérkenni prédikunar Út frá uppmna kristinnar prédikunar hjá Jesú sjálfum í því tilfelli, sem um var getið, má til hægðarauka greina þrjú sérkenni prédikunar, sem meðal annars greina hana frá kennslu og öðru töluðu og rituðu Guðs orði: 118
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.