Skagfirðingabók - 01.01.1977, Blaðsíða 42
SKAG FI RBINGABÓK
Við tökum úr flöskunum tappana í kvöld,
og tæplega lögin það banna.
Því þetta hefur viðgengizt öld fram af öld
okkar eldri og reyndari manna.
:|: Hæ, hó, hæ, hó, ansi er það gaman. :|:
Það skeður ekki oftar í ár,
að við drekkum og kveðum saman.
Við lifum hér saman á líðandi stund,
og létt er nú sorgum að gleyma.
Ég lengi hef þráð þennan fagnaðarfund,
og fúllyndið varð eftir heima.
:|: Hæ, hó, hæ, hó, ansi er það gaman. :|:
Við klingjum og kveðum vort lag
og klárunum hleypum saman.
Ef þjakar oss sultur og þorsti er til meins,
er þyrpzt heim að veitingatjaldi,
því útlát og viðmót og allt er þar eins,
það ei verður borgað með gjaldi.
:|: Hæ, hó, hæ, hó, ansi er það gaman. :|:
Þau gefa okkur gleði og yl
Gilshjónin bæði saman.
Lifið þið heilir, ég lengi ekki brag,
ykkur lukkan og farsældin geymi.
En hér vil ég eiga minn afmælisdag,
meðan er ég í þessum heimi.
:|: Hæ, hó, hæ, hó, ansi er það gaman. :|:
Ef kvenfólkið kæmi á minn fund,
ég kyssti þær allar saman.
Arið 1946 urðu mikil tímamót í ævi Stefáns Sveinssonar. Þá
var lokið vegagerð á Vatnsskarði og að fáu að hverfa fyrir hann
40