Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.2009, Blaðsíða 9
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 85. árg. 2009 5
Vanalega eru gefin út fimm tölublöð á ári en ákveðið var að gefa út aukatölublað
til þess að anna eftirspurn hjúkrunarfræðinga eftir að fá að birta fræðigreinar.
Fræðiritnefnd hefur lagt talsvert á sig til þess að búa svo margar greinar undir birtingu
og ritrýnum er þakkað óeigingjörn störf. Vísindasjóður FÍH styrkti útgáfuna þar sem
styrkþegar þess hafa verið hvattir til þess að birta greinar um sín rannsóknarverkefni.
Rannsókn er ekki lokið fyrr en niðurstöður hafa verið birtar.
Fræðigreinarnar í þessu tölublaði sýna breiddina í rannsóknum hjúkrunarfræðinga. Hér
má lesa um öldrunarhjúkrun, bráðahjúkrun og skurðhjúkrun. Rannsóknaraðferðirnar
eru ólíkar og að auki er ein yfirlitsgrein um lífsgæðahugtakið.
Nú er krafa um að heilbrigðisþjónusta byggist á vísindum og ígrundaðri reynslu. Því
eru menn að búa til klínískar leiðbeiningar sem eiga að samræma og bæta vinnulag.
Í blaðinu er grein sem fjallar um vinnu við að búa til slíkar leiðbeiningar til að koma
í veg fyrir byltur.
Háskólanám í hjúkrun er ein forsenda þess að íslenskir hjúkrunarfræðingar geta
búið til þekkingu með því að stunda rannsóknir. Það var framsýnt fólk sem
stofnaði námsbraut í hjúkrunarfræði á sínum tíma. Samt gat enginn séð fyrir
byltingunni sem þetta nám átti eftir að valda. Marga Thome prófessor hefur unnið
við hjúkrunarfræðideild nánast frá byrjun og segir sína sögu hér í blaðinu. Nýlega
sameinuðust allar heilbrigðisdeildir HÍ í eitt svið og var deildarforseti þess, Sigurður
Guðmundsson, fenginn til þess að segja frá sýn sinni á hlutverk sviðsins.
Vísindasjóður FÍH hefur veitt rannsakendum og reyndar öllum félagsmönnum
dyggan stuðning og er hlutverk hans útlistað í grein í blaðinu. Eins og kemur fram í
formannspistli stendur ekki til að láta þennan sjóð af hendi í kjarasamningum.
Eitthvað fleira er að finna í blaðinu en næsta tölublað kemur strax í lok október. Í því
verður meðal annars fjallað ítarlega um fjölskylduhjúkrun.
Tímarit hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 6405
Bréfsími 540 6401
Netfang christer@hjukrun.is
Vefsíða www.hjukrun.is
Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Christer Magnusson
Tekið er á móti efni til birtingar í netfanginu
christer@hjukrun.is.
Leiðbeiningar um ritun fræðslu- og fræðigreina er
að finna á vefsíðu tímaritsins.
Ritnefnd:
Ragnheiður Alfreðsdóttir, formaður
Auðna Ágústsdóttir
Brynja Ingadóttir
Dóróthea Bergs
Herdís Sveinsdóttir
Hildur Magnúsdóttir
Sigríður Skúladóttir
Fréttaefni: Christer Magnusson,
Aðalbjörg Finnbogadóttir
Ljósmyndir: Christer Magnusson,
Helga Garðarsdóttir, Inger Helen Bóasson,
Kristinn Ingvarsson o.fl.
Próförk: Ágústa Þorbergsdóttir
Auglýsingar: Markfell, sími 511 4433
Hönnun: Þór Ingólfsson, grafískur hönnuður FÍT
Prentvinnsla: Litróf
Upplag 4100 eintök
Pökkun: Iðjuþjálfun Landspítala
ÓÐUR TIL VÍSINDANNA
Þetta tölublað er með óvenjulegu sniði.
Í því eru fimm ritrýndar fræðigreinar
og flestar aðrar greinar tengjast rann-
sóknum og vísindum á einhvern
hátt. Það má segja að tölublaðið sé
tileinkað rannsóknarvirkni og vísindahug
hjúkrunar fræðinga.
Christer Magnusson.
Ritstjóraspjall