Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.2009, Blaðsíða 45

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.2009, Blaðsíða 45
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 85. árg. 2009 41 Ritrýnd fræðigrein Tafla 1. Ástæður sem útilokuðu þátttöku sjúklinga (N=61). Skilyrði fjöldi Yngri en 12 ára 14 Samþykkti ekki þátttöku 6 Áverki eldri en tveggja sólarhringa gamall 16 Aðrir stærri áverkar 4 Geðræn vandamál 1 Undir áhrifum áfengis eða lyfja 4 Þungun 1 Hafði leitað vegna sama vandamáls áður 9 Aðrar ástæður 6 Í einu tilviki gafst sjúklingur upp á að bíða eftir myndgreiningu eftir að hafa samþykkt þátttöku, í einu tilviki var unglæknir ekki þátttakandi í rannsókninni, í þrem tilvikum reyndist ekki unnt að taka einstaklinga inn í rannsókn vegna anna á deild og í einu tilviki reyndist ekki hægt að skoða sjúkling innan tímamarka rannsóknar vegna gruns um methicillin ónæmrar staphylococcus aureus smits (MÓSA). Í endanlegu úrtaki sjúklinga voru 48 einstaklingar, 26 karlar og 22 konur. Af þeim 48 sjúklingum, sem skoðaðir voru, reyndust 15 (31%) vera brotnir, 12 (25%) á ökkla, fjórir karlar og átta konur, og þrír (6%) á fæti, allt karlar. Sextán þátttakendur komu innan við einni klukkustund frá áverka, þar af reyndust átta brotnir. Sjö með ökklabrot og einn brot á fæti. Fjórtán einstaklingar hlutu áverkann við boltaíþróttir, níu við fall í eða úr stiga og níu við fall í hálku. Aðrir ástæður voru að fólk missteig sig eða var við íþróttaiðkun aðra en boltaíþróttir. Við mat sitt á ökkla töldu hjúkrunarfræðingarnir ástæðu til að senda 30 sjúklinga í myndgreiningu og voru þeir 12, sem voru brotnir, í þeim hópi. Við matið á fótaáverkum töldu þeir að 14 sjúklingar þyrftu á myndgreiningu að halda og voru þeir þrír, sem voru brotnir, í þeim hópi. Næmi í mati hjúkrunarfræðinganna samkvæmt Ottawa-gátlistanum var 1.0 bæði fyrir ökkla og fót. Sértæki hjúkrunarfræðinga gagnvart broti á ökkla var 0,40 (95% öryggisbili 0,26–0,54) en 0,21 (95% öryggisbili 0,09–0,33) gagnvart broti á fæti. Unglæknar töldu ástæðu til að senda 28 einstaklinga í myndatöku af ökkla. Tveir af þeim tólf, sem voru brotnir, voru ekki í þeim hópi. Rétt er að taka fram að í öðru tilfellinu vantaði svar frá unglækni. Unglæknarnir töldu ástæðu til að senda 14 sjúklinga í myndgreiningu vegna gruns um fótabrot og voru þeir þrír, sem brotnir voru, í þeim hópi. Næmi klínískrar skoðunar unglækna var 0,90 (95% öryggisbili 0,81–0,98) gagnvart broti á ökkla og sértæki klínískrar skoðunar þeirra 0,35 (95% öryggisbili 0,21–0,49). Unglæknar fundu öll brot á fæti við mat sitt og er því næmi klínískrar skoðunar þeirra 1.0 og sértæki 0,21 (95% öryggisbili 0,09–0,33). Eitt brot á fæti kom ekki fram við myndgreiningu heldur við segulómskoðun tíu dögum seinna en bæði hjúkrunarfræðingur og læknir töldu sjúkling brotinn. Til að skoða samræmi milli mats hjúkrunarfræðinga annars vegar og unglækna hins vegar á þörf fyrir mynd af ökkla var notast við Kí-kvaðratpróf (χ²). Í ljós kom að mjög gott samræmi var milli mats hjúkrunarfræðinga og unglækna (χ² (1, n=47)=25,3; P<0,001) en í 89% tilvika eru þessir aðilar sammála í mati sínu. Næmi klínískrar skoðunar í leit að broti á ökkla með hjálp Ottawa-gátlistans hjá hjúkrunarfræðingunum var 1.0 borin saman við næmi klínískrar skoðunar unglækna 0,90 (95% öryggisbili 0,81–0,98). Sérhæfni hjúkrunarfræðinganna gagnvart broti á ökkla var 0,40 (95% öryggisbili 0,26–0,54) en 0,35 (95% öryggisbili 0,21–0,49) hjá unglæknunum. Kí-kvaðratpróf var að sama skapi notað til að skoða samræmi milli mats hjúkrunarfræðinga annars vegar og unglækna hins vegar á þörf fyrir mynd af fæti. Í ljós kom að nokkuð gott samræmi var á milli mats hjúkrunarfræðinga og unglækna (χ² (1, n=47)=5,39; P<0,05) en í 74% tilvika voru þessir aðilar sammála í mati sínu. Enn fremur fundu báðir hópar öll þrjú brotin á fæti en þar af var eitt sem fannst ekki í myndgreiningu við fyrstu komu heldur seinna við segulómskoðun. Í leit að broti á fæti var næmi 1.0 og sérhæfni 0,21 (95% öryggisbili 0,09–0,33) bæði meðal hjúkrunarfræðinga og unglækna. Niðurstaðan er að í 89% tilvika eru hjúkrunarfræðingar og unglæknar sammála í mati sínu á áverka á ökkla og 74% tilfella á fæti. Hjúkrunarfræðingar pöntuðu ekki fleiri óþarfa myndir en unglæknar og misstu ekki af neinu broti. Rannsóknarniðurstöður sýna að mat hjúkrunarfræðinga og unglækna er sambærilegt þar sem ekki tókst að hrekja það á tölfræðilegan hátt. UMRÆÐA Nákvæmni í mati hjúkrunarfræðinganna var 100% með notkun Ottawa-gátlistans og er það vel sambærilegt við aðrar rannsóknir þar sem næmi hjúkrunarfræðinga nær frá 92% til 100% hvort sem um er að ræða hjúkrunarfræðinga með framhaldsmenntun eða ekki (Allerston og Justham, 2000b; Fiesseler o.fl., 2004; Salt og Clancy, 1997). Enn fremur er það vel sambærilegt við næmi lækna sem er á bilinu 96,4%–99,6% (Bachmann o.fl., 2003). Hjúkrunarfræðingarnir sendu 62,5% sjúklinga í ökklamynd en 40% af þeim reyndust brotnir. Þeir sendu enn fremur 29% í mynd af fæti þar sem 21% þeirra reyndust brotnir. Þetta er heldur betra hlutfall en í rannsókn Mann og félaga (1998) og Salt og Clancy (1997) en þar sendu hjúkrunarfræðingar 73% sjúklinga í mynd en aðeins 20–24% reyndust brotnir. Óþarfa myndgreiningar hjá hjúkrunarfræðingum slysa- og bráðamóttöku FSA eru einnig færri en erlendar rannsóknir meðal sérfræðinga í hjúkrun sýna þrátt fyrir að þeir hafi ekki misst af broti. En hjúkrunarfræðingarnir í rannsókn Allerston og Justham (2000b), sem voru með framhaldsmenntun (e. nurse practitioner), sendu 61,5% sjúklinga sinna í myndgreiningu þó brot væri aðeins 29,6%. Næmi unglækna gagnvart broti á ökkla var 90% en 100% á fæti og er það svipað niðurstöðum annarra rannsókna þar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.