Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.2009, Side 18
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 85. árg. 200914
Á aðalfundi Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga 12. maí sl. var sam þykkt
tillaga um „að fela stjórn félagsins að
ganga frá úrsögn félagsins úr Bandalagi
háskólamanna (BHM)“. Aðdragandi
þessarar ákvörðunar er orðinn langur. FÍH
gekk í BHM í ársbyrjun 1994 eftir sam-
einingu Hjúkrunarfélags Íslands og Félags
háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga.
Skiptar skoðanir voru meðal félagsmanna
um aðildina og í skýrslu undirbúningshóps
um málið segir meðal annars að meta skuli
aðildina á hverjum tíma.
Vinnuveitendur hjúkr unar-
fræðinga greiða nú í fimm
sjóði: starfs mennt unarsjóð,
orlofs sjóð, vísindasjóð,
styrktar sjóð og sjúkra-
sjóð. Einungis þeir tveir
síðasttöldu eru reknir af
BHM.
Helstu mótrök gegn aðild félagsins
að BHM á sínum tíma voru annars
vegar talin vera mikill kostnaður við
aðildina og hins vegar áhrif aðildar á
stéttarvitund hjúkrunarfræðinga, þ.e. að
það bætti samstöðu og stéttarvitund
hjúkrunarfræðinga að standa utan
heildarsamtaka. Eftir fimm ára aðild FÍH að
BHM kom fram fyrsta tillagan frá formanni
FÍH um að sett yrði hámark á aðildargjöld
til bandalagsins. Slíkar tillögur hafa verið
lagðar fram og ræddar í BHM sl. tíu ár án
árangurs. Á aðalfundi BHM í apríl sl. lagði
stjórn FÍH fram tillögu um að samanlögð
iðgjöld félagsmanna einstakra félaga verði
aldrei hærri en 11 milljónir kr. á ári. Tillagan
var felld með öllum greiddum atkvæðum
annarra en fulltrúa FÍH á fundinum.
ÁHRIF ÚRSAGNAR FÍH ÚR BHM Á SJÓÐI OG STYRKI
Elsa B. Friðfinnsdóttir, elsa@hjukrun.is
Eftir að aðalfundur FÍH ákvað að félagið segði sig úr BHM hafa margir haft
samband og tjáð áhyggjur sínar af því hvað verður með sjóði og styrki í umsjá
félagsins og BHM. Elsa B. Friðfinnsdóttir skýrir hér málið.
Fjárhagsáætlun FÍH fyrir yfirstandandi ár
gerir ráð fyrir að aðildargjöld til BHM verði
tæpar 14 milljónir króna. Fjallað hefur verið
ítarlega um ávinning og kostnað af aðild
félagsins í stjórn þess og á aðalfundum
(áður fulltrúaþingum) síðustu þrjú árin. Sú
ákvörðun, sem tekin var um úrsögn FÍH
úr BHM á fyrsta opna aðalfundi félagsins
þann 12. maí, ætti því ekki að koma á
óvart.
Einstakir félagsmenn FÍH hafa í
samskiptum við starfsmenn félagsins
spurst fyrir um hvort og þá hvaða áhrif
úrsögnin muni hafa á styrki og sjóði
sem hjúkrunarfræðingar hafa getað sótt
í. Vinnuveitendur hjúkrunarfræðinga
greiða nú í fimm slíka sjóði, þ.e. starfs-
menntunarsjóð, orlofssjóð, vísinda sjóð,
styrktarsjóð og sjúkrasjóð. FÍH hefur rekið
þá þrjá fyrstnefndu sjálf stætt en þeir tveir
síðasttöldu eru reknir undir hatti BHM.
Úrsögn FÍH úr BHM mun því augljóslega ekki
hafa nein áhrif á réttindi hjúkrunarfræðinga
úr starfsmenntunarsjóði, orlofssjóði eða
vísindasjóði. Rétt er að benda á að FÍH
er eina aðildarfélag BHM sem enn hefur
vísindasjóð. Í kjarasamningum annarra
BHM-félaga við ríkið í júní 2008 var
framlag vinnuveitenda í vísindasjóð aflagt.
Hvað styrktarsjóð og sjúkrasjóð varðar
þá eru báðir þessir sjóðir skilgreindir
sem sjálfseignarstofnanir. Styrktarsjóður
er fyrir opinbera starfsmenn og kveðið
er á um greiðslur vinnuveitenda í sjóðinn
í kjarasamningum. Sjúkrasjóður er aftur
á móti fyrir félagsmenn sem starfa á
almennum vinnumarkaði. Samkvæmt
lögum nr. 19/1979 ber einkafyrirtækjum að
greiða 1% af heildarlaunum starfsmanna
sinna í sjúkrasjóð. Vinnuveitendur
hjúkrunar fræðinga, opinberir sem
almennir, munu því áfram greiða fyrir
hjúkrunar fræðinga í styrktarsjóð og sjúkra-
sjóð og hjúkrunarfræðingar munu áfram
geta sótt um styrki úr slíkum sjóðum.
Hvort sjóðirnir verða reknir sjálfstætt af
FÍH, eingöngu fyrir hjúkrunarfræðinga, eða
í samvinnu við aðra verður ákveðið á
haustmánuðum.
Í VIII. kafla laga BHM er fjallað um úrsögn
félags úr bandalaginu. Þar er meðal
annars kveðið á um fjárhagslegt uppgjör
við úrsögnina eins og segir í 21. gr.
„Félag sem hefur sagt sig löglega úr BHM
getur gert kröfu um hlutdeild félagsins í
eignamyndun BHM, að frátöldum eignum
Vinnudeilusjóðs og Orlofssjóðs, þann
tíma sem félagið var í BHM . . . “. Félagið
hefur unnið að undirbúningi að slíku
fjárhagslegu uppgjöri síðan í byrjun júní.
Styrktarsjóður og
sjúkrasjóður verða áfram
reknir þó að FÍH fari úr
BHM.
Að lokum er rétt að ítreka að stjórn og
starfsmenn FÍH munu fyrst og síðast
gæta hagsmuna félagsmanna í FÍH, við
undirbúning og úrsögn FÍH úr BHM.
Elsa B. Friðfinnsdóttir er formaður FÍH.
Elsa B. Friðfinnsdóttir.