Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.2009, Qupperneq 37
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 85. árg. 2009 33
Ritrýnd fræðigrein
NIÐURSTÖÐUR
26,1% (477) einstaklinganna voru virkir í daglegum athöfnum á
heimilinu. En þegar spurt var um meðaltíma í virkum athöfnum
voru það 45,9% (838) sem vörðu miklum eða þó nokkrum tíma
í virkar athafnir (sjá nánar mynd 1).
Mynd 1. Meðaltími í virkum athöfnum.
Fyrir komu á hjúkrunarheimilið höfðu 45,8% (835) þátttakenda
búið einir og 11,5% (210) höfðu búið á annarri stofnun. Eigið
herbergi var eftirlætisvistarvera til virkni hjá 81,1% (1480)
íbúanna en að öðru leyti var skipting eins og sést á mynd 2.
Mynd 2. Eftirlætisvistarverur til virkni.
Þegar spurt var um þær tómstundir sem íbúar kjósa helst, kusu
flestir samræður, næstflestir að hlusta á útvarp, síðan að horfa
á sjónvarp og þar á eftir fylgdi tónlist en nánara yfirlit yfir þær
tómstundir, sem íbúar kjósa helst, er í töflu 1.
Tafla 1. Tómstundir sem íbúinn helst kýs (N=1825).
% N
Samræður 68,5 1250
Útvarp 64,1 1170
Sjónvarp 61,2 1117
Tónlist 50,3 918
Lestur og skriftir 41,8 762
Leikfimi/hreyfing 32,2 588
Göngutúrar/hjólastólar utandyra 30,5 556
Handavinna/hannyrðir/smíði 22,4 409
Trúarbrögð og andlegar athafnir 20,1 367
Spil og aðrir leikir 18,3 334
Ferðalög og innkaupaferðir 13,4 245
Hjálpa öðrum 12,4 227
Blóm og garðyrkja 4,1 75
Ekkert af ofanskráðu 8,8 160
innan stofnunar en utan deildarinnar d) utan stofnunar e) ekkert
af ofanskráðu (HTR, 2000; Morris o.fl., 1997). Þá voru skoðaðar
þær tómstundir sem íbúinn kaus helst, í RAI-gagnasafninu er
merkt við alla virkni sem íbúinn kýs hvort heldur hún er möguleg
innan eða utan stofnunar. Gefnir eru eftirfarandi svarmöguleikar:
a) spil – aðrir leikir, b) handavinna/hannyrðir/smíði, c) leikfimi/
hreyfing, d) tónlist, e) lestur/skriftir, f) trúarbrögð/andlegar
athafnir, g) ferðalög/innkaupaferðir, h) göngutúrar/hjólastóll
utandyra, i) horfa á sjónvarp, j) blóm eða garðyrkja, k) samræður,
l) hjálpa öðrum, m) ekkert af ofanskráðu, n) útvarp (HTR, 2000;
Morris o.fl., 1997).
Óháðar breytur
Þrír af þeim kvörðum, sem búnir hafa verið til í tengslum við
RAI-matstækið, voru meðal óháðra breyta rannsóknarinnar,
þ.e. kvarði til að meta getu til athafna daglegs lífs (ADL), vitræna
getu og RUG-III-flokkun. ADL-kvarðarnir í RAI-mælitækinu
fyrir hjúkrunarheimili eru tveir, þ.e. stuttur ADL-kvarði og
langur ADL-kvarði. Reiknuð eru meðalstig sjálfsbjargargetu.
Stuttur ADL-kvarði hefur gildi á bilinu 0-16 en langur ADL-
kvarði gildi á bilinu 0-28. Því hærra sem gildið er því minni
er færnin (Morris o.fl., 1999). Vitræni kvarðinn segir til um
vitræna getu og hefur gildi á bilinu 0 (engin vitræn skerðing)
til 6 (mjög mikil vitræn skerðing) (Morris o.fl., 1994). RUG-III-
flokkun er flokkunarkerfi sem sérstaklega hefur verið búið til,
til að meta álag vegna umönnunar íbúa á hjúkrunarheimilum.
Í því flokkunarkerfi eru 7 yfirflokkar sem nefnast endurhæfing,
umfangsmikil hjúkrun, sérhæfð hjúkrun, flókin hjúkrun, andleg
skerðing, hegðunarvandamál og líkamleg skerðing (Anna Birna
Jensdóttir o.fl., 1998). Það er ekki bara ADL-færni sem ræður
röðuninni í flokkana heldur líka þörf t.d. á mikilli endurhæfingu.
Loks voru með í rannsókninni bakgrunnsbreyturnar aldur,
kynferði og búseta fyrir komu á hjúkrunarheimilið. Bæði er
spurt hvort viðkomandi hafi búið einn og þá eru möguleikarnir
þrír, þ.e. nei, já og á annarri stofnun. Síðan er það fyrri
búseta og þá eru möguleikarnir sex, þ.e. fyrri búseta á þessu
hjúkrunarheimili, annað hjúkrunarheimili/stofnun, heimili/
stofnun fyrir geðsjúka, heimili/stofnun fyrir þroskahefta, ekkert
af ofanskráðu og þjónustuhús fyrir aldraða (HTR, 2000; Morris
o.fl., 1997).
Tölfræðileg úrvinnsla
Við rannsóknina var notuð megindleg aðferðafræði. Unnið var
úr gögnum í SPSS-forrritinu. Settar voru fram lýsandi tölulegar
upplýsingar (meðaltal, hlutfall, fjöldi), marktækni athuguð með
kí-kvaðratprófi og t-prófi (byggðu á Spearmans rho-stuðlinum)
og reiknuð fylgni á milli breyta með Cramérs V og Spearmans
rho-stuðlunum. Cramérs V stuðullinn nær frá 0 (engin fylgni)
til 1 (fullkomin fylgni), og Spearmans rho-stuðullinn frá 0 til
+1 eða -1 (fullkomin jákvæð eða neikvæð fylgni). Þegar vísað
er til fylgni í niðurstöðunum verður viðmiðið eftirfarandi: 0,00
er engin fylgni, frá 0,10-0,30 er veik fylgni, frá 0,30-0,60 er
talsverð fylgni, frá 0,60-1,00 er sterk fylgni en 1,00 er fullkomin
fylgni (Levin og Fox, 2003). Það kom nokkrum sinnum fyrir í
breytum að gildi vantaði (atriðabrottfall). Atriðabrottfall var mest
1,04%.
100
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
H
lu
tfa
ll
%
14,9
31,0
43,7
10,1
Mikill, meira en
2/3 af tímanum
fió nokkur, 1/3 til
2/3 af tímanum
Lítill, minna en
1/3 af tímanum
Enginn
Mynd 1
100
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
H
lu
tfa
ll
%
Eigi› herbergi
Dagstofa
Innan stofnunar
en utan deildar
Utan stofnunar
Mynd 2
Ekkert af
ofanskrá›u
81,1
71,1
28,3
21,9
8,3