Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.2009, Síða 39

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.2009, Síða 39
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 85. árg. 2009 35 Ritrýnd fræðigrein Samkvæmt skýrslunni Daglegt líf á hjúkrunarheimili (Anna Birna Jensdóttir o.fl., 1995) voru 17,8% íbúa í hjúkrunarrými á höfuðborgarsvæðinu virkir í daglegum athöfnum en 13,4% í hjúkrunarrými á Akureyri árið 1994. Því má draga þá ályktun að heldur hafi miðað áleiðis í þessum efnum á hjúkrunarheimilum á Íslandi á þessu tíu ára tímabili. Í skýrslunni frá 1995 voru eftirlætisvistarverur til virkni eigið herbergi og flestir kusu að horfa á sjónvarp eða hlusta á útvarp. Eigið herbergi er enn eftirlætisvistarvera til dægrastyttingar en nú kjósa flestir samræður og síðan útvarp og sjónvarp. Hugsanlegt er að aukin áhersla á samræður endurspegli að einhverju leyti viðhorfsbreytingu meðal starfsfólks hjúkrunarheimila þannig að frekar sé gert ráð fyrir samræðum á heimilunum. Sömuleiðis hafa rannsóknir undanfarinna ára bent á mikilvægi samskipta og samveru (Gunther og Alligood, 2002; Ingibjörg Hjaltadóttur, 2001). Varðandi þátttöku í dægrastyttingu þá skipta aldur og kyn almennt litlu, þ.e. lítillega fleiri konur voru virkar en karlar, en ekki var munur á milli kynja þegar spurt var um meðaltíma í virkum athöfnum. Ekki var heldur munur eftir aldri þegar spurt var um hvort viðkomandi tæki þátt í félagslífi en þó reyndist munur, þó lítill væri, þegar borinn var saman aldur og meðaltími í virkum athöfnum, þ.e. því eldri sem menn voru því minni var meðaltími í virkum athöfnum. Marktækt fleiri konur en karlar kjósa handavinnu. Samkvæmt rannsókn Voelkl, Fries og Galecki (1995), sem m.a. byggðist á RAI-niðurstöðum, voru konur virkari en karlar þannig að almennt virðast niðurstöður rannsókna benda í þessa átt. Þeir sem bjuggu einir áður en þeir komu á hjúkrunarheimili voru virkari og vörðu meiri tíma í dægrastyttingu. Þeir sem höfðu áður dvalist á núverandi hjúkrunarheimili eða á öðru hjúkrunarheimili eða stofnun voru minna virkir enda trúlega verr á sig komnir en þeir sem komu heiman frá sér. Einnig kom í ljós að það sem mest áhrif hafði á virkni var geta til að sinna athöfnum daglegs lífs (ADL) og vitræn geta. Þessir tveir þættir skerða mjög það svigrúm sem einstaklingar hafa til tómstunda og fækka möguleikum til dægrastyttingar. Langflestir kjósa eigið herbergi, en það vekur athygli að þeir sem eru með litla ADL-færni kjósa síður eigið herbergi en þeir kjósa líka síður dagstofu. Það sama á við um tengsl vitrænnar getu og vals á einstaklingsherbergi, með öðrum orðum þeir sem hafa minni vitræna getu kjósa síður einstaklingsherbergi, en munurinn er ekki eins afdráttarlaus varðandi dagstofu. Það vekur upp þá spurningu hvar þessir einstaklingar vilja vera til að stytta sér stundir. Hluti af skýringunni gæti verið að þeir taka lítinn eða engan þátt í dægrastyttingu og geti því ekki valið eftirlætisvistarverur til virkni. Þeir merkja einnig við færri atriði en aðrir varðandi eftirlætistómstundir en kjósa samt öryggið því að þeir vilja síður vera utan deildar við dægradvölina. Yngri einstaklingar kjósa frekar að vera úti eða utan deildar og sömuleiðis þeir sem eru betur á sig komnir varðandi ADL. Það er ekki margt sem þeir kjósa sem hafa lélega ADL-færni og skerta vitæna getu, enda eiga þeir líklega ekki auðvelt með það. En þeir kjósa tónlist fram yfir annað. Geta skiptir engu máli hvort tónlist er valin enda má segja að tónlistin sé þess eðlis að allir geti notið hennar að einhverju leyti og þar sker hún sig frá öðru. Tónlist ætti því að nýtast vel til dægrastyttingar á hjúkrunarheimilum og hún virðist hafa jákvæð áhrif, minnka árásarhneigð og auka vellíðan hjá fólki með heilabilun (Clark o.fl., 1998; Sambandham og Schirm, 1995). Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að sá hópur, sem þarf sérstaklega að horfa til varðandi dægrastyttingu á hjúkrunarheimilum, séu þeir sem eru með mikla vitræna skerðingu og þeir sem þurfa mikla aðstoð við ADL. Þeir einstaklingar verja minni tíma til virkni og kjósa færri atriði sem eftirlætistómstundir. Svipaða niðurstöðu fengu Dobbs o.fl. (2005), þ.e. að það sem einkenni þá sem ekki eru félagslega virkir sé mikil vitræn skerðing, hegðunarvandamál, þunglyndi og léleg ADL-færni. Svipaða sögu er að segja um rannsókn Voelkl og félaga (1995) á virkum tíma eftir mismunandi persónueinkennum heimilismanna á hjúkrunarheimili. Þar kom í ljós að mestar áhyggjur þarf að hafa af þeim sem velja fá virkniatriði, þeim sem vilja vera í eigin herbergi, þeim sem eru vitsmunalega mjög skertir og þeim sem lenda hátt á RUG-III kvarðanum. Í þessari rannsókn komu reyndar fram aðeins aðrar niðurstöður varðandi það hvar einstaklingar lenda í RUG-III- flokkun, þ.e.a.s. ekki kemur fram línulegt samband milli RUG- III-flokkunar og þátttöku í dægrastyttingu. Flokkurinn „sérstök endurhæfing“ sker sig mjög úr þannig að þeir sem eru í þeim flokki eru virkari en þyngd þessa RUG-III-flokks gefur tilefni til að ætla. Sá flokkur er næst þyngstur samkvæmt RUG-III sem ákvarðar greiðslu til hjúkrunarheimilanna. Það kemur ekki á óvart að RUG-flokkun tengist ekki virkni línulega eins og ADL. Eins og kemur fram hér fyrr í þessari grein er það ekki bara ADL- færni sem ræður röðinni í RUG-III-flokkana heldur líka t.d. þörf á mikilli endurhæfingu frá sérhæfðum og þá dýrari starfsmönnum. Einstaklingur, sem lendir í flokknum „mikil endurhæfing“, þarf ekki að vera með eins mikið skerta færni og sá sem lendir í léttari RUG-III-flokki en hann hefur að öllum líkinum þörf fyrir sérhæfða og dýrari þjónustu. En eins og fram kom fyrr sýna niðurstöður þessarar rannsóknar að því minni sem getan til að sinna ADL var því minni var dægrastyttingin og því meiri sem vitræn skerðing var því minni var dægrastyttingin. Erfitt er að segja til um hversu mikla dægrastyttingu þeir kjósa sem eru með skerta andlega og vitræna getu. Hér þarf einnig að horfa til þess að stundum kjósa þessir einstakingar (sem og aðrir íbúar) frekar rólegheit og hvíld. Í rannsókn, sem Kalis o.fl. gerðu 2005 og byggðist á viðtölum við fagmenntað starfsfólk á nokkrum hjúkrunarheimilum, kom í ljós að þegar starfsfólk var spurt hvað væri gott líf fyrir fólk með heilabilun (dementia) var svarið friður og rólegheit, að byggja á reynslu einstaklingsins og beita ekki þvingunum. Svörin féllu ekki að þeirri stefnumörkun sem heimilin studdust við þar sem sjálfræði og frelsi, einstaklingurinn og lífstíll voru efst á blaði. LOKAORÐ Bæði þessi rannsókn og aðrar sem vitnað er í hér benda til mismunandi aðferða til dægrastyttingar hjá þeim sem

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.