Tölvumál - 01.02.2008, Page 5
T Ö L V U M Á L | 5|
sem allir hafa nú ókeypis aðgang að í gegnum vef Ský, http://www.sky.
is, reynir félagið að þjóna félagsmönnum sínum. Þeir eru stöðugt hvattir til
að koma með ábendingar og tillögur um allt sem varðar upplýsingatækni
og félagsstarfið. Vefur félagsins var t.d. nýlega endurhannaður með tilliti
til þess að ná betur til félaganna. Þess ber einnig að geta að þó svo að
bakgrunnur félagsmanna sé breiður vinnur félagið að því um þessar mundir
að breikka hann enn frekar.
Sem stendur er mikill skortur á menntuðu fagfólki í tækni og raungreinum,
t.d. tölvunarfræði og verkfræði. Ástæða er til að hvetja ungt fólk, ekki síst
ungar stúlkur, til að leggja slíkt nám fyrir sig. Á sviði upplýsingatækni eru
fjölmörg áhugaverð og vel launuð störf í boði. Störfin eru oftar en ekki mjög
skapandi og gefa kost á sveigjanlegu starfsumhverfi og sveigjanlegum
vinnutíma.
Ég óska Ský til hamingju með 40 ára afmælið. Megi félagið enn í
mörg ár vera frjór vettvangur umræðna um fjölbreytt málefni er varða
upplýsingatækni á einhvern hátt öllum til gæfu og góðs.
Svana Helen Björnsdóttir,
verkfræðingur og formaður Ský
Ský er eina þverfaglega félag
landsins í upplýsingatækni
Markmið félagsins er að
vera vettvangur umræðna og
skoðanaskipta
Sem stendur er mikill
skortur á menntuðu fagfólki
í tækni- og raungreinum, t.d.
tölvunarfræði og verkfræði
Ég óska Ský til hamingju með
40 ára afmælið