Tölvumál - 01.02.2008, Page 79
T Ö L V U M Á L | 7 9
Hægt er að komast á netið næstum hvar sem er með nýjustu farsímum,
lófatölvum, tónlistarspilurum og lófatækum leikjatölvum. Meðfærileikinn er
á kostnað skjástærðar og möguleika við innslátt sem aftur mótar raunhæfa
notkunarmöguleika.
20. nóvember
Hugbúnaðargerð á krossgötum var yfirskrift árlegrar hugbúnaðarráðstefnu
Ský þar sem fjallað var um áskoranir í starfsumhverfi hugbúnaðargeirans
og nýjungar í aðferðafræði. Fjallað var um mannekluna í upplýsinga
tæknigeiranum og reynt að varpa ljósi á umfang vandans og hvernig á að
bregðast við honum. Einnig var fjallað um mismunandi aðferðir til að leysa
stór og smá verkefni í hugbúnaðargerð, um sívaxandi kröfur sem gerðar
eru til öryggis í hugbúnaðarþróun og þá þróun í vefþjónustu sem gerir æ
auðveldara að samhæfa og tengja ólík kerfi.
20.nóvember
Félag kvenna í upplýsingatækni hélt umræðufund á Grand þar sem rætt
var um draumavinnustaðinn og bestu leiðir við að leysa verkefni. Guðbjörg
Linda Rafnsdóttir á rannsóknarstofu í vinnuvernd og dósent við HÍ stýrði
umræðum.
29. nóvember
Upplýsingatækni og öryggi sjúklinga var yfirskrift ráðstefnu Fókus sem var
haldin á Hótel Loftleiðum. Fjallað var um mikilvægi upplýsingatækni fyrir
öryggi sjúklinga út frá klínísku og tæknilegu sjónarhorni.
29. nóvember
Ársfundur Fókus, félags um upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu var
haldinn í kjölfar heilbrigðisráðstefnunnar.
6. desember
Jólaráðstefna Ský var haldin á Hilton Reykjavík Nordica og fjallaði um
umbreytingu Internetsins þar sem gengið var út frá því sem forsendu að
framtíðin beri með sér margföldun á umferð um Internetið og kröfur muni
aukast um tryggð gæði og hnökralausa notkun. Það sem hefur einkennt
þróun Netsins undanfarið er mikil aukning nýrrar bandbreiddarkrefjandi
þjónustu og stóraukin hlutdeild almennings og er áætlað að svokallað
„innihald“ Netsins tvöfaldist núna á 18 mánaða fresti.
13. desember
Fjölmennur hádegisfundur var haldinn á Grand Hótel Reykjavík þar sem
kynntar voru niðurstöður úr úttekt sem Sjá ehf vann fyrir forsætisráðuneytið
og Samband íslenskra sveitarfélaga. Fundurinn bar yfirskriftina Hvað er
spunnið í opinbera vefi 2007? Markmiðið með úttektinni er að fá heildstætt
yfirlit yfir þá þjónustu sem er í boði á vefjum ríkis og sveitarfélaga en einnig
að auka vitund opinberra aðila um það hvar þeir standa í samanburði við
aðra og gefa betri hugmynd um möguleika og tækifæri sem felast í rafrænni
þjónustu. Sams konar úttekt var gerð árið 2005 og áhugavert að skoða
hvaða breytingar hafa orðið á síðustu tveimur árum.
Frekari upplýsingar um atburðina og glærukynningar fyrirlesara er að finna
á vef Ský www.sky.is undir Ráðstefnuvefur Liðnir atburðir.