Jón á Bægisá - 01.11.1994, Blaðsíða 60

Jón á Bægisá - 01.11.1994, Blaðsíða 60
við majórinn inni á herbergi, var Agól? Ég er ekki hræddur við neinn, að minnsta kosti ekki við þennan heiðingja, hann Agól. Ég ætla mér að kála honum sjálfur. Félagar mínir sáu með eigin augum, að hann henti Kóraninum á eldinn! Mér væri sönn ánægja að fanga hann. Hver þeirra var það? Ég þori að veðja að það var sá lítt skeggjaði við hliðina á þér. Af hverju svararðu ekki? Ertu vakandi eða sofandi?" Með storminum bárust inn í kofann til þeirra annarleg harmakvein. Það var enn eins og kona í sárri neyð eða kýr sem baulaði í kvöl. Því meir sem maðurinn frá Gílan lagði við hlustir, því greinilegar fannst honum hann heyra öll þessi hljóð. Það var sem þau blönduðust örvæntingfullu veini Soghru, þegar hún varð fyrir skotinu sem banaði henni. Einnig þá var hávaðasamt í kringum hann. En hljóðið frá vatninu, sem stöðugt féll úr þakrennunni, kvaldi manninn frá Gílan enn meir. Það var eins og einhver væri að krafsa með beittri nögl í opið sár. Hann nísti tönnum í lakt við eintóna hljómfall vatnsdropanna, og það lá við að hann missti alveg stjórn á sér. Þögnin í herberginu olli Múhameð Valí yfirliðþjálfa auðsjáanlega áhyggjum. Hann vildi fá að vita hvort Gílanbúinn svæfi eða væri vakandi. „Af hverju svararðu mér ekki? Þið eruð fjandmenn Guðs og postula hans. Það er bæði nauðsynlegt og heilladrjúgt að drepa ykkur alla. Ég hef heyrt að Agól hafi lýst því yfir, að hann væri tilbúinn að láta taka sig, ef þeir dræpu morðingja dóttur hans. Það veit hamingjan að mér er nákvæmlega sama, hvort það var dóttir hans eða ekki dóttir hans sem byssukúlan mín hæfði þennan dag í Túlam. Ilvað kemur það mér við? Ég gerði bara skyldu mína við Guð. Ég segi það ennþá einu sinni: Agól er óvinur Guðs, og að drepa hann er velgjörningur við Guð og menn. Heyrirðu það sem ég er að segja? Ég óttast engan! Það var mín kúla sem drap konuna — og hvað ætli hann geti svo sem gert í því...?“ „Leggðu byssuna á gólílð! Þú ert búinn að vera, ef þú hreyfir þig.“ Maðurinn frá Gílan sagði þetta, hásum, höstugum og þvinguðum rómi. Yfir- liðþjálfinn hafði kveikt á einni eldspýtunni enn, og það var eins og Gílanbúinn tæki það sem tákn. Á svipstundu hafði hann snarað byssunni upp úr vasanum og opnað lásinn, og í gullinni birtunni og ljósfjólubláum reyknum frá brennisteininum, sem lýsti upp herbergið, miðaði hann með byssunni á yfirlið- þjálfann. Til að geta kveikt á eldspýtunni sluddi Múhameð Valí byssuskeflið við gólfið meðan hann þrýsti byssuhlaupinu milli armanna. Oddi byssustingsins var þrýst inn undir vinstra handlegg, þegar hann teygði úr hendinni, sem hélt á eldspýtunni. í ljósi eldspýtunnar horfði yfirliðþjálfinn beint inn í byssuhlaupið og uppsperrt augu Gílanbúans. Það kom algjört fát á yfirliðþjálfann. Hann tók ekki einu sinni eftir því að eldspýtan brenndi fingur hans, og handleggurinn féll þungt niður með lærinu. „Fleygðu rifilinum á gólfið, hreyfðu þig ekki — þá er úti um þig.“ Byssuhlaupið snerti gagnauga yfirmannsins. Maðurinn frá Gílan greip föstu taki í kápukraga hans og dró hann inn í herbergið. „Bíddu bara — það verður séð fyrir þér. Haltu bara áfram að gorta. Þekkirðu 60 á J$œy/-iá - TIMARIT hÝÐENDA 1994
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Jón á Bægisá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.