Jón á Bægisá - 01.11.1994, Síða 104

Jón á Bægisá - 01.11.1994, Síða 104
Ég var kominn í klípu. Gegn hinu illa, kaldriíjuðu og skeíjalausu, hefði ég getað beitt mér til fullnustu og tortímst til varnar háskólanum. En andspænis tilfmningasemi var ég ráðþrota. Nú var ýtrustu tillitssemi þörf. „Er soldið ijör á æskuheimilinu þegar jólin skella á?“ spurði ég og fannst að svona samræðustíll gæti slegið vopnin úr höndum hans. „Ég veit það ekki,“ svaraði hann, „ég var búinn að segja þér að mér hefur aldrei verið boðið heim eftir að okkur föður mínum varð sundurorða, og það var fyrir langalöngu. Jólin urðu ekki til fyrr en heilli eilífð eftir það.“ „Já, ég held ég skilji hvað þú átt við að stríða,“ sagði ég. „Það er von þú sért svona vondur og það er alls ekki þér að kenna. Þitt hlutskipti var að vera barn í ijölskyldu í upplausn, eins og við köllum það núna.“ Andskotinn sendi mér auga sem gerði mér verulega órótt innanbrjósts. „Þótt ég njóti þess að láta þig vorkenna inér, skaltu ekki halda að ég geti ekki lesið þig eins og opna bók,“ sagði hann. „Þú heldur að þú sért klókari en ég. Háskólamenn ganga oft með þá grillu.“ „Ég held svo sannarlega ekki að ég sé klókari en þú,“ sagði ég, „mér er fullljóst hvað hendir prófessora sem lenda í slíkri villu; hinn lánlausi dr. Fást, til dæmis. En mér finnst samt að þú getir kornið drengilega fram við mig; þú ferð frain á samúð mína og þegar ég legg mig allan fram hefurðu í hótunum við mig og vænir mig um hræsni. Við skulum reyna að ræða saman vitrænt og heiðarlega.“ Aftur endurómaði kapellan af þessu snögga klúra freti og mér varð ljóst að þótt andskotinn kysi að birtast í gervi séntilmanns með óaðfinnanlegan nútíma- smekk voru allar hinar hliðarnar á persónu hans til staðar, þótt ósýnilegar væru, meðal annars sú með drekahöfuðin sjö og hin með tunguna á þessum óvenjulega stað. „Viti’ænt og heiðarlega þýðir bara að fara að þínum leikreglum,“ sagði hann, „og ég kann best við mínar eigin sem ég bý til jafnóðum. Heldurðu að ég sé svo skyni skroppinn að ég geti ekki haft nema eina skoðun í einu? Meira að segja þið, þetta heimska mannfólk, eruð fær um það. Mér finnst gaman að vera með vellu kringum jólin; þá er nú einu sinni afmæli litla bróður míns. En láttu þér ekki detta í hug að ég láti nokkurt tækifæri úr greipum ganga til að gera þau hvimleið þrátt fyrir það.“ Hann þagnaði og ég sá að hann var bæði að hugsa til fortíðarinnar og að springa af monti, svo ég hafði hljótt um mig, og brátt hélt hann áfram. „Ég held að jólakortið hafi verið ein snjallasta uppfinningin mín,“ sagði hann. „Já, ég held að öllu öðru fremur hafi jólakortið orðið til þess að varpa skugga á jólin. Og ég kom því svo kænlega af stað; bara nokkur snotur viktorí- önsk kveðjuorð á prenti og síðan — jæja, þú veist hvernig ástandið er núna.“ Ég kinkaði kolli og nuddaði á mér handlegginn sem var enn helaumur af skrifkrampa. „Og gjafirnar,“ sagði hann hugsi. „Þær eiga auðvitað rætur að rekja til gjafa vitringanna. Ég þekkli vitringana vel, skilurðu. Kaspar, Baltasar og Melkíor — bestu strákar og gjafirnar þeirra, gull, reykelsi og mirra, báru göfugu hjartalagi þeirra vitni. En þegar ég fór að útfæra hugmyndina og kom því inn í kollinn á fólki að allir ættu að gefa svotil öllum öðrum jólagjafir var ég svo 104 á Jföayáá - Tl'MARIT ÞÝÐENDA 1994
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Jón á Bægisá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.