Jón á Bægisá - 01.11.1994, Blaðsíða 62

Jón á Bægisá - 01.11.1994, Blaðsíða 62
leit beint framan í hann. Skelft andlit Múhameðs Valís sást óljóst í daufri morgunskímunni. Svitinn bogaði af andlitinu. Hann ranghvolfdi augunum, svo ekki sást í nema hvítuna. Ilann virtist vera orðinn meðvitundarlaus. Gul froðan lak úr munninum og það korraði í honum. Samt tókst lionum að byrja að tala, þegar hann leit í björt og glampandi augu Gílanbúans. „Gefðu mér líf! Vægð! Ég er fimm barna faðir. Hlífðu mér barnanna vegna! Ég skal gera allt sem þú skipar mér. Fyrirgefðu mér æsku þinnar vegna. Það var lygi sem ég var að segja. Ég drap engan. Ég er ekki morðingi Soghru. Það var majórinn sjálfur sem hleypti af — ég snerti ekki á vélbyssunni.“ Yfirliðþjálfinn brast í grát. Jafnskjótlega og vatn slekkur eld hvarf reiði Gílan- búans fyrir þrábeiðni, kjökri og ístöðuleysi yfirliðþjálfans. Hann gat ekki annað en hugsað til barnanna fimm — ef hann væri þá ekki að ljúga því. Hann sá sitt eigið barn fyrir sér, þar sem það lék sér úti í horni heima í kofanum. Það var hætt að rigna. Morgunkyrrðin og skær birtan urðu enn frekar til að vekja fyrirlitningu Gílanbúans á Múhameð Valí. Birtan kom honum til að flýta sér. Hann spýtti fyrirlitlega, og eftir nokkrar mínútur hafði hann lokið við að klæða yfirmanninn úr regnfrakkanum, leyst skothylkið af belti hans og vafið sitt eigið teppi um háls honum og höfuð. Síðan setti hann á sig hatt yfirliðþjálfans, sveipaði regnkápu hans um herðar sér og steig út á svalirnar. Innan úr skógi heyrðist aftur kvalaóp eins og frá konu í nauðum. Um leið heyrðist hvellt skot. Það hæfði hægri handlegg mannsins frá Gílan. Áður en hann næði að snúa sér við varð hann fyrir annarri kúlu sem hæfði hann í brjóstið, svo hann steyptist niður af svölunum. Þetta var verk lögregluþjónsins frá Baludj. Guðrún S. Jakobsdóttir þýddi úr persnesku. 62 á jSayáiá - TÍMARIT ÞÝÐENDA 1994
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Jón á Bægisá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.