Jón á Bægisá - 01.11.1994, Síða 89

Jón á Bægisá - 01.11.1994, Síða 89
Dezsö Monoszlóy Einn á ferð til Maríulauga Eflir margra daga hik rann upp fyrir H. að hann gæti ekki lagt upp einsamall tii Maríulauga. Ifann svipaðist þó án árangurs um eftir ferðafélögum, horn herbergisins störðu á hann eins og nútíðin hefði ekkert minni og minnið ætti sér enga framtíö. Fyrii-varalaust ílaug honum Robbe-Grillet í hug og kvikmynd hans, þessi kvikmynd þar sem gangar, hljómleikasalir, göngugötur og hótelherbergi staflast hvert upp á annað og þrjár óþekktar verur hlaupa um, á þeim og í þeim, tala stundum líka, hver við aðra eða bara svona fyrir munni sér. Þessar myndir hlutu að tengjast einni og sömu vitund, því engu skipti þó H. legði sig fram, hann gat ekki smíðað sér úr þeim sögu. Þó hafði hann tvisvar hitt höfundinn, nánar tiltekið tvisvar hlustað á hann er hann las upp fyrir troðfullum sal og síðan öðrum ámóta. Hann nefndi sjálfan sig og Balzac í sömu andrá sem bar vitni um býsna sterka sjálfsvitund. En kannski var hægt að halda sig við hljómleikasalinn. Hvenær ætli hann hafi verið byggður? Trúlega eftir daga Goethes, Gogols og Chopins, þannig að þeir sáu hann alls ekki úr vagninum þegar leið þeirra lá inn í borgina. Þeir gátu heldur ekki hafa séð kvikmynd R. G., þó kann vatnið úr gosbrunninum að hafa skvest framan í þá þegar golan þyrlaði því til, og páfuglarnir, já páfuglarnir hafa líka spígsporað um garðinn í þá daga. Á vatni Teplu syntu svanir og þegar þeir sem voru aö dreypa á Rúdólfsvatni skimuðu upp í hæðirnar veifuðu til þeirra ellihrumar furur. Einnig þá voru hótelin gul og þök húsanna rauðbrunabrún. H. greip í hægindastólinn en hann vildi enn ekki mjakast úr stað. Borgin var í nákvæmlega þrjátíu ára fjarlægð og virtist nákvæmlega jafn langt undan núna og í fyrradag. En H. gafst ekki upp. Hann hafði oft heyrt að til væru litir, vissar bragðtegundir, hljóð á borð við skrjáf í sæng, dularfullir brestir og brak, og með þeim gæti maður jafnvel, ef heppnin væri með, hlaupið yfir nokkur ár. Til einskis hóf Eliot Öskudaginn sinn af þvílíku vonleysi: Because I do not hope to turn again. To turn again, hægindastóllinn þurRi bara að færast fram um einn millimetra! Þegar gengið er inn í borgir þrjátíu ár í burtu er óþarft að telja skrefin, og þegar þangað er komið þarf ekki að setja húsin hlið við hlið, maður þarf ekki einu sinni að vita hvar það stóð, þetta tiltekna hótel, sem líka var gult, til þess að aðrir rati, hvort það stóð hérna eða svolítið fjær. Jafnvel koma manns til slíkrar borgar hefur eitthvað sérstakt við sig. Eins og einhver í mjúkum inniskóm stígi á eina þráðinn sem er til staðar. En þessi þráður tengir allt hvað öðru, fljót, furur, fjöll, danssafi og Elísabetu, sem eiginlega hét Dunja. H. fann að hann hafði stigið á þráðinn, réttara sagt að hljómleika- salurinn hafði haldið innreið sína í hann, en hann lagði sig fram um að fara að engu of óðslega. Fyrst riíjaði hann upp að hann mætti ekki hugsa um Eliot, þegar allt kom til alfs hafði hann í þá daga vart vitað nokkurn skapaðan hlut um hann og Öskudaginn hans hafði hann ekki þekkt heldur. Um Elísabetu, sem í raun hét Dunja, mátti hann heldur ekki hugsa því hún var enn ekki á þræðinum, hún hagræddi á sér hárinu á einhverjum gangi sem var ósýnilegur í bili, ellegar sagði eitthvað við vinkonu sína sem H. var núna búinn að gleyma, á - LESIÐ MILLl LÍNA 89
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Jón á Bægisá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.