Jón á Bægisá - 01.12.2006, Blaðsíða 89
Á hálum ís - Ijóðrœn skautahlaup
Bókin var send helstu fjölmiðlum og völdum hópi rithöfunda, en af-
gangurinn seldur í tveimur bókabúðum í miðborginni. Upplagið seldist
upp á örskömmum tíma og var ekki endurprentað. Viðbrögð voru betri en
ég hafði þorað að vona í mínum björtustu draumum. í blöðum og tíma-
ritum birtust ekki færri en 15 umsagnir um kverið, þeirra á meðal þrjár í
Egyptalandi, og hefur ekkert af verkum mínum hlotið viðlíka umfjöllun.
Meðal þeirra sem skrifuðu um bókina var ljóðskáldið Takís Varvitsíótis,
sem sæmdur hafði verið ljóðskáldaverðlaunum Grikkja árið áður: „Maður
á þess sjaldan kost að heyra skáldaraddir sem eru eins tónhreinar og rödd
þessa íslenska ijóðskálds. Eg var í sannleika sagt heillaður af Ijóðunum, enda
eru mörg þeirra hreinustu perlur. Ljóðlist hans býr í senn yfir ljóðrænum
innileik og íhygli og dregur upp snjallar, frumlegar og óþvingaðar myndir,
en hún er framar öðru persónuleg, verðleiki sem ég að minnstakosti met
mjög mikils."
Kærkomnust var samt persónuleg orðsending frá ljóðskáldinu
Ódysseasi Elýtís, sem átti eftir að hljóta bókmenntaverðlaun Nóbels 1979:
„Eg þakka kærlega fyrir ljóðin yðar. Þau eru meðal þess mikilsverðasta
sem ég hef lesið í seinni tíð, og þau birta hárrétta nútímalega skynjun á
veruleikanum samfara eðlilegum tjáningarhætti, og vekur mér mikla að-
dáun hvernig hægt var að koma honum til skila í þýðingunni. Verið svo
vinsamlegur að þiggja, ásamt G.S. Patríarkeas, mínar hlýjustu og einlæg-
ustu hamingjuóskir.“
Dauði Baldurs og önnur Ijóð var fyrsta íslenska bókin sem þýdd var
beint af íslensku á grísku. Sú næsta birtist ekki fyrren árið 2002, leikritið
Epískeptes (Gestagangur).
The Postwar Poetry of Iceland
Langur tími leið þartil aftur gæfist færi á að kynna íslensk ljóð erlendis.
I júní 1976 barst Rithöfundasambandi Islands bréf frá Islensk-ameríska
félaginu og Menningarstofnun Bandaríkjanna sem höfðu milligöngu um
boð til íslensks höfundar um þátttöku í alþjóðlegri starfsönn rithöfunda
(International Writing Program) á vegum Iowa University frá september-
byrjun til desemberloka 1976. Fylgdu boðinu tilmæli um að valinn yrði
höfundur sem treystist til að þýða og kynna íslenska ljóðlist eftir seinni
heimsstyrjöld með það fyrir augum að birta efnið í safnriti ljóðlistar á
Norðurlöndum eða jafnvel gefa út íslenska úrvalið í sérstakri bók með
greinagóðum inngangi þýðandans. Ofangreindir aðilar höfðu hvor um sig
afráðið að leggja fram minnst þúsund dollara til fyrirtækisins, að því til-
skildu að Rithöfundasambandið útvegaði sömu upphæð, semsé 180.000
há - í DAG HEYRA SÖNGGYÐJURNAR TIL ÞÍN
87