Bændablaðið - 03.12.2015, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. desember 2015
Bürger-Grebe fjölskyldan í þorp-
inu Helmscheid í sveitarfélaginu
Korbach í Þýskalandi rekur
myndarleg bú með 200 mjólkur-
kúm. Þrátt fyrir að það skili um
tveim milljónum lítra af mjólk á
ári, þá verða þau að stunda verk-
takastarfsemi samhliða bústörfum
til að halda rektrinum á floti.
Helmscheid er 200 manna þorp
í Waldeck Frankenberg í Norður-
Hessen. Til að þjóna forvitnum gest-
um hefur Bürger-Grebe fjölskyldan
sett upp kaffihúsið „Kuhstall-Café“
þar sem gestir geta fylgst með mjölt-
um og öðrum bústörfum meðan þeir
þiggja heimatilbúnar veitingar. Er
þetta mjög líkt því sem gert er m.a. í
Garði í Eyjafirði og í Efstadal í upp-
sveitum Suðurlands.
Bændurnir heita Reinhard Citizen
Grebe og Christine Grebe og annast
þau búskapinn ásamt fjórum börnum
sínum. Það eru dæturnar Stefanie,
sem er með B. Sc-gráðu í búfræði og
Christina, sem einnig er með sömu
gráðu. Síðan synirnir Tobias, sem
vinnur við verktakaþjónustu búsins,
og yngri sonurinn, Lars Grebe, sem
er að læra vélvirkjun og stefnir á að
aðstoða bróður sinn í verktakastarf-
seminni. Auk þess tilheyrir tíkin
Lotta fjölskyldunni.
Í heimsókn með íslenskum
bændum
Blaðamaður Bændablaðsins átti
þess kost að heimsækja þetta bú í
byrjun nóvember í átján manna hópi
íslenskra bænda, fulltrúa Kraftvéla
og fjármögnunarfyrirtækisins Ergo.
Var þetta annað kúabúið sem heim-
sótt var í þessari ferð. Þótt búin
séu nokkuð ólík, þá eiga þau það
sameiginlegt að verða nú að heyja
harða baráttu fyrir tilveru sinni vegna
gríðarlegrar lækkunar á mjólk í
löndum Evrópusambandsins. Frúin
á bænum, Christine Grebe, tók á móti
Íslendingahópnum, en með í för slóst
þýski ráðunauturinn Uwe Pohlmann.
Með 200 hektara, 200 kýr og
2 milljónir mjólkurlítra
Búið er með um 200 hektara land
og 200 Holstein-mjólkurkýr. Allir
kvígukálfar eru settir á og síðan
haldið þegar þær ná 15 mánaða
aldri til frekari kálfaframleiðslu.
Hluti kvíganna fer til endurnýjunar
á stofninum á bænum en aðrar eru
seldar eftir burð sem lífdýr á markað.
Nokkra nautkálfa ala þau sjálf og
nýta í tilraunaræktun.
Nyt kúnna er ágæt á búinu og
skila þær að meðaltali 10.500 kg
(lítrum) á ári. Í heild er búið því að
skila um tveim milljónum lítra af
mjólk á ári.
Á búinu er hringlaga mjalta-
gryfja og tekur það einn mann ásamt
aðstoðarmanni um tvær klukku-
stundir að mjólka allar 200 kýrnar
og er það gert tvisvar á dag. Christine
segir að við að fjölga kúnum í 360
muni mjaltatíminn aðeins lengjast
í hvert sinn um eina klukkustund,
en ekki þurfi að leggja út í neinn
viðbótarkostnað við mjaltagryfjuna.
Í verktakastarfsemi til að bjarga
rekstrinum
Vandamál Bürger-Grebe fjöl-
skyldunnar er það sama og hjá öðrum
mjólkurframleiðendum í Þýskalandi,
mikil verðlækkun á mjólk. Það eru
einkum tveir þættir sem virðast skýra
þessar verðlækkanir sem koma líka
niður á öðrum landbúnaðarafurðum.
Það er afnám kvótakerfis til að stýra
mjólkurframleiðslu og viðskiptabann
á landbúnaðarafurðir við Rússa sem
orsakað hefur offramboð í Evrópu.
Verslunarfyrirtækin hafa spilað mjög
inn á þetta, sem gert hefur ástandið
enn verra fyrir bændur í mörg-
um löndum. Þannig hafa breskar
verslunarkeðjur t.d. verið að kaupa
mjólkurafurðir frá Austur-Evrópu
Bürger-Grebe fjölskyldubúið í Norður-Hesse í Þýskalandi:
Framleiða tvær milljónir lítra af mjólk
en stunda verktöku til að komast af
− sýndu íslenskum bændum athyglisverða nýjung við að nýta kúamykju sem undirburð fyrir kýr
Myndir / HKr.
ynd / http://www.buerger-grebe.de/über-uns/